#50. - Lífróður Sigurðar Inga og Samfylkingin lækkar flugið

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Sig­urður Ingi Jó­hanns­son, formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sat fyr­ir svör­um í leiðtoga­spjalli und­ir stjórn Stef­áns Ein­ars Stef­áns­son­ar í nýj­asta þætti Spurs­mála.

    Þátt­ur­inn var sýnd­ur hér á mbl.is fyrr í dag en upp­töku af hon­um má sjá og heyra í spil­ar­an­um hér að ofan, á Spotify og YouTu­be, og er hún öll­um aðgengi­leg.

    Svar­ar fyr­ir fylgið

    Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins hef­ur verið að mæl­ast við frost­mark í skoðana­könn­un­um und­an­farið. Sam­kvæmt töl­um frá liðinni viku er alls kost­ar óvíst hvort Fram­sókn komi til með að ná manni inn á þing.

    Í þætt­in­um svar­ar Sig­urður Ingi fyr­ir fylgið sem er í sögu­legu lág­marki sem stend­ur og verður hann meðal ann­ars spurður út í hvaða brögðum hann ætli að beita til að reisa fylgi flokks­ins við í yf­ir­stand­andi kosn­inga­bar­áttu.

    Frétt­ir vik­unn­ar krufðar

    Auk Sig­urðar Inga mæta þau Orri Páll Jó­hanns­son, þingmaður Vinstri grænna, og Nanna Mar­grét Gunn­laugs­dótt­ir, sem sit­ur í 2. sæti á lista Miðflokks­ins í Suðvest­ur­kjör­dæmi, í settið til að kryfja helstu frétt­ir í líðandi viku.

    Rýnt í nýj­ustu töl­ur

    Að vanda fær­ir Andrés Magnús­son, full­trúi rit­stjóra á Morg­un­blaðinu, fregn­ir af sjóðheit­um töl­um úr skoðana­könn­un Pró­sents í þætti dags­ins. Þar rýn­ir hann og ræðir stöðuna á hinu póli­tíska sviði ásamt Stefáni Ein­ari þar sem ljóst er að Sam­fylk­ing­in lækk­ar nú flugið. 

    Ekki missa af lif­andi og upp­lýs­andi kosn­ingaum­ræðu í Spurs­mál­um hér á mbl.is.

    Nanna Gunnlaugsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson og Orri Páll Jóhannsson eru …
    Nanna Gunn­laugs­dótt­ir, Sig­urður Ingi Jó­hanns­son og Orri Páll Jó­hanns­son eru gest­ir Stef­áns Ein­ars Stef­áns­son­ar í Spurs­mál­um í dag. Sam­sett mynd/​María Matth­ías­dótt­ir
    mbl.is
    Fleira áhugavert
    Fleira áhugavert