Andlát: Sigurður Örn Brynjólfsson

Sigurður Örn fæddist 19. september 1947 í Reykjavík.
Sigurður Örn fæddist 19. september 1947 í Reykjavík.

Sigurður Örn Brynjólfsson, grafískur hönnuður og frumkvöðull í teiknimyndagerð á Íslandi, lést 22. nóvember sl. í Eistlandi, 77 ára að aldri.

Sigurður Örn fæddist 19. september 1947 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Helga Sigurðardóttir húsmóðir og Brynjólfur Ingólfsson ráðuneytisstjóri.

Sigurður Örn, sem kunnur var sem SÖB, stundaði nám í grafískri hönnun við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1964 til 1968 og grafík í kvöldskóla sama skóla 1968-1969. Nam frjálsa myndlist, málun og grafík við Academie van Beeldende Kunsten í Rotterdam 1969-70. Hann var gestalistamaður í Ungverjalandi, Finnlandi, Eistlandi og Litháen á árunum 1986-1992.

Sigurður Örn hóf feril sinn sem grafískur hönnuður á nokkrum auglýsingastofum hér á landi, vann síðar sjálfstætt sem teiknari og kenndi um tíma grafíska hönnun við Myndlista- og handíðaskólann. Hann flutti til Eistlands 1993 og fékkst þar við teiknivinnu, myndasögugerð og gerð barnabóka. Hann gerði fyrstu íslensku teiknimyndina, Þrymskviðu, sem sýnd var á RÚV árið 1980, og hefur síðan þá komið að gerð hátt í 100 teiknimynda. Auk starfa í Eistlandi vann hann einnig að verkefnum í Svíþjóð, Finnlandi, Ungverjalandi og Litháen, sem og á Íslandi. Sigurður Örn teiknaði einnig myndasögur í dagblöð, eins og um Bisa og Krimma, sem birtust í DV 1977-1978, og Pu and Pa, sem birtust í Fréttablaðinu 2003. Hann hélt sýningar á eigin verkum bæði hér á landi og erlendis og hlaut alþjóðlegar viðurkenningar fyrir teikningar sínar.

Eftirlifandi eiginkona Sigurðar Arnar er Liivia Leskin fatahönnuður og sonur þeirra er Tindur Leskin, f. 2001. Fyrri eiginkona hans var Fjóla Rögnvaldsdóttir myndmenntakennari og eignuðust þau þrjú börn; Rögnvald Frey, f. 1968, Brynjólf Ara, f. 1972, og Helgu, f. 1979. Barnabörnin eru fjögur og eitt barnabarnabarn.

Útför Sigurðar Arnar fer fram í Eistlandi en minningarathöfn verður haldin á Íslandi í janúar nk.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert