Lát hjóna í Neskaupstað: Gæsluvarðhald framlengt

Frá Neskaupstað.
Frá Neskaupstað. mbl.is/Sigurður Bogi

Fall­ist hef­ur verið á kröfu lög­reglu­stjór­ans á Aust­ur­landi um áfram­hald­andi gæslu­v­arðhald yfir manni sem er grunaður um að hafa orðið hjón­um á átt­ræðis­aldri að bana í heima­húsi í Nes­kaupstað í ág­úst síðastliðinn.

Gæslu­v­arðhaldið átti að renna út á morg­un en það hef­ur verið fram­lengt til 20. des­em­ber. Maður­inn hef­ur setið í gæslu­v­arðhaldi í 14 vik­ur en sam­kvæmt lög­um um meðferð saka­mála er aðeins heim­ilt að vista grunaða í gæslu­v­arðhald í 12 vik­ur án þess að ákæra sé gef­in út gegn þeim. Hins veg­ar telj­ast skil­yrði  2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/​2008 um meðferð saka­mála upp­fyllt með vís­an til al­manna­hags­muna.

Kristján Ólaf­ur Guðna­son, yf­ir­lög­regluþjónn á Aust­ur­landi, seg­ir í sam­tali við mbl.is að gagna í mál­inu sé enn beðið en von­ir standa til að þau ber­ist eigi síðar en í næstu viku. Málið verður þá sent embætti héraðssak­sókn­ara til af­greiðslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert