Kjósendur mögulega seinni af stað eftir gleðskap

Það getur spilað inni í kjörsókn að aðventan sé að …
Það getur spilað inni í kjörsókn að aðventan sé að ganga í garð, að sögn formanns yfirkjörstjórnar í Reykjavík. mbl.is/Karítas

Eva Helgadóttir, formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavík segir ýmislegt geta spilað inn í sem veldur því að kjörsókn fer hægar af stað nú en í síðustu alþingiskosningum. Árstíðin meðal annars.

„Auðvitað spilar árstíð og ýmislegt inn í svona. Þegar við vorum að kjósa 2021 þá vorum við mánuði fyrr og vorum ekki á aðventunni. Mögulega hefur það eitthvað að segja,“ segir Eva í samtali við mbl.is. 

Hugsanlega hafi einhverjir verið á jólahlaðborði eða gleðskap í gær og því lengur að koma sér af stað. Það sé því ekki útséð með að kjörsókn taki við sér eftir hádegi.

„Vonandi erum við ekki að sjá minni kjörsókn þegar upp er staðið, maður vonar það alltaf,“ segir Eva.

Svipað í öðrum kjördæmum

Líkt og greint hefur verið frá er kjörsókn í Reykjavík nú lakari en á sama tíma í alþingiskosningunum 2021 og virðist það sama eiga við í fleiri kjördæmum. 

„Þetta virðist vera gegnumsneytt í gegnum öll kjördæmin miðað við fréttir.“

Klukk­an 13 í dag höfðu 15,87 pró­sent kjós­enda á kjör­skrá í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður greitt at­kvæði, en á sama tíma árið 2021 höfðu 17,39 pró­sent kjós­enda í kjör­dæm­inu greitt at­kvæði.

Svipað er uppi á ten­ingn­um í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður, en þar höfðu 17,08 pró­sent kjós­enda á kjör­skrá greitt atkvæði klukk­an 13. Árið 2021 höfðu 18,22 pró­sent greitt at­kvæði á sama tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert