Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, er ekki inni samkvæmt fyrstu tölum úr Reykjavíkurkjördæmi suður. Þegar talin hafa verið 21.949 atkvæði í kjördæminu hafa Vinstri græn fengið 3% atkvæða, eða samtals 650 atkvæði.
Missir flokkurinn 11,7 prósentustig frá síðustu kosningum þegar Vinstri græn fengu 14,7%.
Samfylkingin mælist stærsti flokkur kjördæmisins með 23,3% og bætir við sig 10 prósentustigum frá því árið 2021. Bætir flokkurinn við sig tveimur þingmönnum.
Sjálfstæðisflokkurinn er nú með 18,8%, en var síðast með 22,8%. Missir flokkurinn einn þingmann miðað við þessa stöðu.
Flokkur fólksins heldur sínum þingmanni, en Inga Sæland er í framboði í kjördæminu. Er flokkurinn með 13,1%, en var síðast með 8,9%.
Miðflokkurinn er með 10% atkvæða og nær manni inn, en flokkurinn var ekki með þingmann eftir síðustu kosningar og 4,1%.
Miðað við fyrstu tölur eru þetta þingmenn kjördæmisins. Landsyfirlitið sem birtist nú byggir að hluta á niðurstöðum úr skoðanakönnunum, þar til komnar eru atkvæðatölur úr öllum kjördæmum. Eftir að fyrstu tölur eru komnar úr öllum kjördæmum byggir landsyfirlitið einungis á þeim tölum sem gefnar hafa verið upp af yfirkjörstjórnum.
Kjördæmakjörnir
· Jóhann Páll Jóhannsson (S)
· Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (D)
· Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (C)
· Inga Sæland (F)
· Ragna Sigurðardóttir (S)
· Snorri Másson (M)
· Hildur Sverrisdóttir (D)
· Jón Gnarr (C)
· Kristján Þórður Snæbjarnarson (S)
Uppbótar
· Björn Leví Gunnarsson (P)
· Aðalsteinn Leifsson (C)