Hafa ekki skýra heimild til að taka ákvörðun

Yfirkjörstjórn Suðvesturkjördæmis hafði ekki skýra lagaheimild til þess að taka …
Yfirkjörstjórn Suðvesturkjördæmis hafði ekki skýra lagaheimild til þess að taka ákvörðun um endurtalningu í kjördæminu. mbl.is/Karítas

Umboðsmaður Fram­sókn­ar­flokks­ins lagði fram beiðni um end­urtaln­ingu í Suðvest­ur­kjör­dæmi eft­ir kosn­ing­ar á laug­ar­dag. Formaður yfir­kjör­stjórn­ar kjör­dæm­is­ins seg­ir að eng­in skýr heim­ild sé fyr­ir yfir­kjör­stjórn­ina í kosn­inga­lög­um til þess að taka ákvörðun um end­urtaln­ingu.

Þetta seg­ir Gest­ur Svavars­son, formaður yfir­kjör­stjórn­ar Suðvest­ur­kjör­dæm­is, í sam­tali við mbl.is.

Yfir­kjör­stjórn­in fundaði í gær­kvöldi og sendi eft­ir fund­inn umboðsmanni Fram­sókn­ar­flokks­ins svar þar sem vísað var í kosn­inga­lög og lög um þingsköp Alþing­is en þar er und­ir­bún­ings­nefnd gef­in, að sögn Gests, býsna góð tæki til að bregðast við eða fara sjálf í alls kyns at­hug­an­ir, þ.á.m. end­urtaln­ingu.

Und­ir­bún­ings­nefnd rann­sak­ar fram­kvæmd Alþing­is­kosn­inga

Í svar­bréfi yfir­kjör­stjórn­ar­inn­ar, sem mbl.is hef­ur fengið sent, er vísað til kosn­ingalaga og seg­ir að ákvæði kosn­ingalaga hafi ekki að geyma heim­ild til handa yfir­kjör­stjórn til þess að taka ákvörðun um end­urtaln­ingu.

Þá er einnig vísað til breyt­inga á lög­um um þingsköp sem samþykkt voru þann 18. nóv­em­ber en þar er gert ráð fyr­ir að und­ir­bún­ings­nefnd skipuð níu kjörn­um Alþing­is­mönn­um hafi það hlut­verk að rann­saka fram­kvæmd Alþing­is­kosn­inga.

„Með lög­un­um er und­ir­bún­ings­nefnd­inni falið að sann­reyna úr­slit kosn­inga, þ.m.t. að telja at­kvæði eða óska eft­ir að kjör­stjórn­ir geri það, sbr. 3. mgr. 1. gr. lag­anna.

Yfir­kjör­stjórn lít­ur svo á að með lög­un­um sé kveðið á um skýra heim­ild fyr­ir und­ir­bún­ings­nefnd­ina til að taka ákvörðun um end­urtaln­ingu at­kvæða og því til­efni til þess að álykta um að heim­ild­in liggi ekki ann­ars staðar. Sam­kvæmt fram­an­sögðu tel­ur yfir­kjör­stjórn Suðvest­ur­kjör­dæm­is sig þannig ekki bæra til þess að fjalla frek­ar um beiðnina,“ seg­ir í svari stjórn­ar­inn­ar.

„Þannig að svarið fólst eig­in­lega í því að við töld­um að við hefðum ekki skýra laga­heim­ild til þess að bregðast við,“ seg­ir Gest­ur

Hafa lokið sín­um störf­um

Þá tek­ur Gest­ur fram að yfir­kjör­stjórn­in hafi fylgt at­kvæðataln­ing­unni eins og kveðið sé á um í lög­um og reglu­gerðum und­ir lög­um um taln­ing­ar.

Um næstu skref seg­ir Gest­ur að lands­kjör­stjórn hafi boðað til út­hlut­un­ar­fund­ar á föstu­dag þar sem út­hlutað verður þing­sæt­um á grund­velli skýrslna sem lands­kjör­stjórn hef­ur fengið úr öll­um kjör­dæm­um og er þar umboðsmönn­um boðið að vera viðstadd­ir.

Eft­ir það muni lands­kjör­stjórn fara yfir ágrein­ings­at­kvæði og þar á eft­ir mun taka til starfa und­ir­bún­ings­nefnd­in sem hafi heim­ild til þess að taka ákvörðun um end­urtaln­ingu.

Hann seg­ir að öðru leyti að yfir­kjör­stjórn­in í Suðvest­ur­kjör­dæmi hafi lokið sín­um störf­um

„Við erum reynd­ar að hitt­ast á morg­un bara til þess að fara yfir sein­ustu fund­ar­gerð og rita yfir hana. Svo eig­um við eft­ir að koma ágrein­ings­at­kvæðunum til lands­kjör­stjórn­ar svo hún geti farið að nota þau. En það er allt búið í sjálfu sér af okk­ar hálfu.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert