Þungir dómar í Sólheimajökulsmáli

Jón Ingi Sveinsson hlaut sex ára dóm í málinu.
Jón Ingi Sveinsson hlaut sex ára dóm í málinu. mbl.is/Eyþór

Jón Ingi Sveins­son hlaut í dag sex ára dóm í Sól­heima­jök­uls­mál­inu svo­kallaða. Tveir aðrir men hlutu fimm ára dóm fyr­ir þátt sinn í mál­inu og aðrir tveir fjög­urra ára dóm. Þetta staðfest­ir Karl Ingi Vil­bergs­son, sak­sókn­ari hjá embætti héraðssak­sókn­ara, við mbl.is.

Sam­tals 18 manns voru ákærðir í mál­inu vegna inn­flutn­ings, vörslu, sölu og dreif­ingu fíkni­efna, en auk þess var horft til þess að um skipu­lagða glæp­a­starf­semi væri að ræða sem og pen­ingaþvætti. Þrír játuðu brot sín að hluta og var mál þeirra klofið frá aðal­mál­inu.

Þegar mbl.is ræddi við Karl Inga hafði hann ekki séð dóm­inn, aðeins hlýtt á dóms­upp­kvaðning­una. Hann taldi þó að all­ir hinir ákærðu hefðu verið fundn­ir sek­ir í mál­inu.

Um­fangs­mikið og flókið

Málið er um­fangs­mikið og flókið. Lög­regla lagði hald á um sex kíló af fíkni­efn­um, hátt í 40 millj­ón­ir króna, pen­inga­taln­inga­vél­ar, auk veru­legs magns vopna, þ.á.m. hin ýmsu skot­vopn, sverð, fimm axir og fjölda stungu­vopna.

Ástæða þess að málið er kallað Sól­heima­jök­uls­málið er að spjall­hóp­ur nokk­urra þeirra sem dæmd­ir voru í mál­inu var kallaður Sól­heima­jök­ull.

Frá 28 ára upp í 71 árs

Sak­born­ing­arn­ir voru 18 tals­ins, 5 kon­ur og 13 karl­ar. Flest eru á fer­tugs- og fimm­tugs­aldri, en sá yngsti er 28 ára og sá elsti 71 árs. Á meðal þeirra voru ein­ar mægður og ein­ir feðgar.

For­saga máls­ins er sú að í júní á þessu ári fór fram um­fangs­mik­il lög­regluaðgerð vegna glæpa­hóps­ins sem grunaður er um inn­flutn­ing, vörslu, sölu og dreif­ingu fíkni­efna.

Á þriðja tug manna var hand­tek­inn í þágu rann­sókn­ar­inn­ar og fram­kvæmd­ar voru rúm­lega þrjá­tíu leit­ir í um­dæm­inu.

Flest­ir sak­born­ing­anna voru hand­tekn­ir í aðgerðum lög­reglu um miðjan apríl, en þá stóð hóp­ur­inn fyr­ir komu tveggja manna sem fluttu fíkni­efni til lands­ins með skemmti­ferðaskipi.

Skipu­lögð brot­a­starf­semi

Níu sak­born­ing­anna voru ákærðir fyr­ir skipu­lagða brot­a­starf­semi og stór­fellt fíkni­efna­laga­brot með því að hafa á ár­inu 2023 til 11. apríl á þessu ári selt og dreift fíkni­efn­um hér á landi. Þau voru sögð hafa sam­mælst um til­tekna verka­skipt­ingu við geymslu, pökk­un, sölu og dreif­ingu efn­anna.

Þá voru sak­born­ing­ar máls­ins einnig grunaðir um vopna­laga­brot, pen­ingaþvætti og um­ferðarlaga­brot. Einn var grunaður um til­raun til mann­dráps, en fallið var frá þeirri ákæru.

Höfuðpaur­ar glæpa­hóps­ins voru tald­ir vera þeir Jón Ingi Sveins­son, 47 ára, og Pét­ur Þór Elías­son, 36 ára. Lög­regla taldi þá vera eig­end­ur fíkni­efn­anna. 

Í gæslu­v­arðhalds­úrsk­urði yfir Jóni Inga seg­ir að hann hafi rætt um starf­sem­ina „eins og hann væri að reka fyr­ir­tæki”.

Frétt­in hef­ur verið upp­færð

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert