Macland hverfur úr Kringlunni: „Hellings púsluspil“

Gólfið í Macland þrifið skömmu eftir eldsvoðann.
Gólfið í Macland þrifið skömmu eftir eldsvoðann. mbl.is/Drífa

Mac­land mun ekki snúa aft­ur í Kringl­una eft­ir elds­voðann sem varð þar í sum­ar.

Fyr­ir­tækið var þar með bæði versl­un og verk­stæði, sem var sér­vottað af Apple. 

„Þeir voru við hliðina á Galle­rí 17 [á 2. hæð]. Það er þar beint fyr­ir ofan sem eld­ur­inn kem­ur upp, þannig að það var öll þessi miðja, bæði önn­ur hæðin og fyrsta hæðin sem var eig­in­lega gjör­ónýt,“ seg­ir Bald­vina Snælaugs­dótt­ir, markaðsstjóri Kringl­unn­ar, aðspurð.

Aðeins Mac­land og Eir­berg hverfa því á brott frá Kringl­unni eft­ir elds­voðann mikla.

Eldurinn í Kringlunni kviknaði í júní.
Eld­ur­inn í Kringl­unni kviknaði í júní. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Fram kom í til­kynn­ingu á vefsíðu Mac­lands skömmu eft­ir elds­voðann að fyr­ir­tækið væri harmi slegið vegna gríðarlegs tjóns sem hefði orðið.

„Mac­land er á þeim stað í Kringl­unni sem fór verst út úr þess­um at­b­urðum og er tjónið gríðarlegt í versl­un og á verk­stæðinu okk­ar,“ sagði í til­kynn­ing­unni, þar sem jafn­framt kom fram að fyr­ir­tækið stefndi á að snúa aft­ur sem fyrst.

Núna er ljóst að ekki verður af því.

Baldvina Snælaugsdóttir, markaðsstjóri Kringlunnar.
Bald­vina Snælaugs­dótt­ir, markaðsstjóri Kringl­unn­ar. mbl.is/​Eyþór

Stór áfangi náðist í nóv­em­ber

Spurð út í stöðu mála í Kringl­unni dag, rétt tæpu hálfu ári eft­ir að elds­voðinn varð, seg­ir Bald­vina versl­un­ar­miðstöðina vera komna á fulla ferð.

Stór áfangi hafi náðst þegar sex versl­an­ir opnuðu 21. nóv­em­ber, þ.e. NTC-versl­an­irn­ar Galle­rí 17, GS skór, Kult­ur og Kult­ur menn, sem voru all­ar á svæðinu sem fór verst út úr brun­an­um, og versl­an­irn­ar Icewe­ar og Pol­arn O. Pyr­et.

Í gær opnaði síðan Joe & The Juice á nýj­an leik og á morg­un opn­ar ný versl­un Húrra Reykja­vík í Kringl­unni. Eft­ir tíu daga opn­ar síðan Sø­strene Grene í stærra plássi en áður, eða þar sem Eir­berg var staðsett. Pol­arn O. Pyr­et fór á hinn bóg­inn í pláss Sø­strene Grene.  Nespresso hef­ur einnig fært sig í annað pláss í Kringl­unni eft­ir elds­voðann.

Þrif í Kringlunni skömmu eftir eldsvoðann.
Þrif í Kringl­unni skömmu eft­ir elds­voðann. mbl.is/​Eyþór

Tæki­færi mynd­ast í erfiðleik­um 

„Sem bet­ur fer í svona mikl­um erfiðleik­um mynd­ast stund­um tæki­færi,“ seg­ir Bald­vina.

„Þetta er búið að vera hell­ings púslu­spil,“ bæt­ir hún við um hróker­ing­arn­ar á versl­un­un­um. Auk Húrra Reykja­vík kem­ur versl­un­in MT Hekla ný inn í Kringl­una í stað Mac­lands og Eir­berg.

Bald­vina seg­ir alla hafa lagt mikið á sig til að hægt yrði að opna fyr­ir jól­in. Sum­ar versl­an­ir hafi opnað seinna en von­ir stóðu til en slíkt geti alltaf gerst í svona mikl­um fram­kvæmd­um.

Fólk á gangi í Kringlunni í sumar.
Fólk á gangi í Kringl­unni í sum­ar. mbl.is/​Eyþór

Í bak­sýn­is­spegl­in­um 

„Við erum bara al­sæl og aðsókn­in í nóv­em­ber var frá­bær, vel yfir miðað við í fyrra, og des­em­ber fer mjög vel af stað,“ seg­ir Bald­vina.

„Þannig að ég ætla ekki að segja við þig „hvaða bruni“, því hann mun aldrei gleym­ast, en þetta er komið í bak­sýn­is­speg­il­inn og við erum kom­in fulla ferð áfram, sem er bara mjög gam­an.“

Kringlan.
Kringl­an. mbl.is/​Hari
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert