Nýbakaður tvíburapabbi ætlaði vart að trúa sínum eigin eyrum þegar í ljós kom að hann vann 35 milljónir króna í Happdrætti Háskóla Íslands í kvöld.
Í tilkynningu frá HHÍ segir að vinningurinn hafi sannarlega komið sér vel fyrir unga fjölskyldu með tvíbura og leikskólabarn.
Hann vann milljónirnar í aðalútdrættinum, sem telur sjö milljónir, en vegna þess að vinningurinn féll á trompmiða fimmfaldaðist vinningsupphæðin.
Tvíburapabbinn var ekki sá eini sem vann í aðalútdrætti HHÍ í kvöld. Eldri borgari vann 70 milljónir króna.
Segir í tilkynningu frá HHÍ að maðurinn, sem er tæplega níræður, hafi verið mjög glaður með milljónirnar 70.
Vinningshafinn hefur átt miða í happdrættinu alla ævi en móðir hans keypti miða þegar hann fæddist, tveimur árum eftir stofnun happdrættisins. Allar götur síðan hefur hann átt þann miða auk annarra. Í gegnum tíðina hefur hann unnið fjölda vinninga en þetta er án efa langstærsti vinningurinn.
Í tilkynningu segir enn fremur að útdráttur kvöldsins hafi verið skemmtilegur lokahnykkur á 90 ára afmælisári Happdrættis Háskóla Íslands. Á árinu hafa 48.926 manns skipt á milli sín alls 1.914.655.000 kr.
Fyrir utan vinningshafa kvöldsins þá vann einn miðaeigandi 50 milljónir króna í maí, 12 miðaeigendur fengu sjö skattfrjálsar milljónir hver árið 2024 og átta vinningshafar fengu 2,5 milljón króna hver.
Að lokum hafa hvorki meira né minna en 180 einstaklingar fengið eina milljón króna í vinning í Happdrætti Háskólans á afmælisárinu.
Happdrætti Háskólans óskar vinningshöfum innilega til hamingju og þakkar öllum miðaeigendum stuðninginn síðastliðin 90 ár. Með kaupum á miða í Happdrætti Háskólans stuðla miðaeigendur að áframhaldandi uppbyggingu Háskóla Íslands og tryggja Íslendingum blómlegt háskólasamfélag.
Allur hagnaður af rekstri HHÍ fer í uppbyggingu Háskóla Íslands og hefur happdrættið fjármagnað nær allar byggingar og tækjakost Háskólans frá stofnun þess.