Oftast strikað yfir formanninn og varaformanninn

Bjarni Benediktsson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir skipuðu fyrsta og …
Bjarni Benediktsson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir skipuðu fyrsta og annað sæti í Suðvesturkjördæmi hjá Sjálfstæðisflokknum. mbl.is/Ólafur Árdal

Kjós­end­ur í Suðvest­ur­kjör­dæmi strikuðu oft­ast yfir nöfn Bjarna Bene­dikts­son­ar, for­manns Sjálf­stæðis­flokks­ins, og Þór­dís­ar Kol­brún­ar R. Gylfa­dótt­ur, vara­for­manns Sjálf­stæðis­flokks­ins, í alþing­is­kosn­ing­un­um í síðasta mánuði.

Þau skipuðu fyrsta og annað sæti lista flokks­ins.

591 kjós­andi Sjálf­stæðis­flokks­ins strikaði yfir eða færði nafn Þór­dís­ar Kol­brún­ar neðar á lista flokks­ins og 544 kjós­end­ur strikuðu yfir eða færðu nafn Bjarna.

Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn hlaut flest at­kvæði í kjör­dæm­inu eða alls 14.997. Bjarni er fyrsti þingmaður kjör­dæm­is­ins og Þór­dís Kol­brún sá fimmti.

Þetta kem­ur fram í skýrslu yfir­kjör­stjórn­ar Suðvest­ur­kjör­dæm­is.

Oft­ast strikað yfir odd­vita

Á lista Miðflokks­ins var nafn Bergþórs Ólason­ar, odd­vita flokks­ins, oft­ast strikað út eða fært neðar á list­ann, eða alls 109 sinn­um.

130 kjós­end­ur strikuðu yfir eða færð nafn Þor­gerðar Katrín­ar, odd­vita Viðreisn­ar, og 84 kjós­end­ur gerðu slíkt hið sama við nafn Sig­mars Guðmunds­son­ar, sem skipaði annað sæti list­ans.

Kjós­end­ur Sam­fylk­ing­ar­inn­ar strikuðu oft­ast yfir eða færðu nöfn Ölmu Möller, odd­vita flokks­ins, og Þór­unn­ar Svein­bjarn­ar­dótt­ur, sem skipaði þriðja sæti list­ans. 106 kjós­end­ur strikuðu yfir eða færðu nafn Ölmu og 102 kjós­end­ur gerðu slíkt hið sama við nafn Þór­unn­ar.

Sex kjós­end­ur færðu eða strikuðu yfir nafn Guðmund­ar Inga Krist­ins­son­ar, odd­vita Flokks fólks­ins, og þrír kjós­end­ur gerðu slíkt hið sama við nafn Grét­ars Mar Jóns­son­ar, sem skipaði þriðja sæti list­ans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert