„Það veit enginn hvað gerist næst“

Hassan rekur klæðaskerastofu á Hverfisgötunni og hefur myndað góð tengsl …
Hassan rekur klæðaskerastofu á Hverfisgötunni og hefur myndað góð tengsl hérlendis og segist vera orðinn mikill Íslendingur. mbl.is/Árni Sæberg

„Bæði pabbi og mamma eru búin að hringja í mig eft­ir að Assad flúði frá Sýr­landi,“ seg­ir Hass­an Shahin, klæðsker­inn geðþekki sem hef­ur skapað sér líf hér á Íslandi ásamt konu sinni og rek­ur sauma­stofu á Hverf­is­götu í Reykja­vík.

„For­eldr­ar mín­ir og bróðir eru í Sýr­landi og núna rík­ir mik­il óvissa í land­inu. Þegar for­eldr­ar mín­ir hringdu sögðu þau að það vissi eng­inn hvað myndi ger­ast næst, en þau væru að von­ast til að ástandið yrði betra. Eins og staðan er í dag er allt í upp­lausn.“

Sýr­lensk­ir upp­reisn­ar­menn náðu valdi á höfuðborg­inni Dam­askus á sunnu­dag­inn sem olli því að for­set­inn Bash­ar al-Assad fór í fel­ur og flúði til Rúss­lands. Á sama tíma og Hass­an seg­ir að flest­ir Sýr­lend­ing­ar séu ánægðir yfir að Assad hafi verið hrak­inn frá völd­um sé samt beyg­ur í mörg­um yfir hvað taki við, ekki síst í ljósi stríðsátak­anna á svæðinu.

Lesa má meira um málið í Morg­un­blaðinu í dag. 

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert