Gekk inn í kvennaklefa og áreitti unglingsstúlku

Maðurinn sagði fyrir dómi að hann hefði ekki vitað að …
Maðurinn sagði fyrir dómi að hann hefði ekki vitað að hann hefði farið inn í kvennaklefann. Í niðurstöðu dómsins segir aftur á móti að maðurinn hafi gengið ítrekað inn í kvennaklefann framhjá áberandi skilti sem sýndi að um væri að ræða svæði aðeins ætlað konum. Því megi fullyrða að maðurinn hafi haft ásetning til að ganga inn í kvennaklefann í umrætt sinn. Ljósmynd/Colourbox

Lands­rétt­ur hef­ur staðfest dóm yfir karl­manni sem var sakaður um kyn­ferðis­brot og brot gegn barna­vernd­ar­lög­um þegar hann gekk inn í kvenna­klefa sund­laug­ar þar sem 14 ára stúlka stóð nak­in. 

Maður­inn viðhafði um­mæli um lík­ama henn­ar og spurði hana per­sónu­legra spurn­inga, bauð henni að sjá lík­ama sinn og byrjaði að girða niður um sig uns stúlk­an sagði nei. At­vikið átti sér stað í mars 2022. 

Var maður­inn, sem er er­lend­ur, dæmd­ur í tveggja mánaða skil­orðsbundið fang­elsi og gert að greiða stúlk­unni 500.000 í miska­bæt­ur í Héraðsdómi Reykja­ness í des­em­ber í fyrra. Lands­rétt­ur staðfesti dóm­inn í gær. 

Í dómi Lands­rétt­ar voru rak­in atriði sem tal­in voru draga úr trú­verðug­leika framb­urðar manns­ins. Framb­urður stúlk­unn­ar var á hinn bóg­inn tal­inn skýr og stöðugur og ekki stang­ast á við gögn máls­ins.

Talið var hafið yfir skyn­sam­leg­an vafa að maður­inn hefði gerst sek­ur um þá hátt­semi sem hon­um væri gef­in að sök og hann sak­felld­ur sam­kvæmt ákæru. 

Mann­in­um var enn frem­ur gert að greiða all­an áfrýj­un­ar­kostnað máls­ins, tæp­ar 1,4 millj­ón­ir kr. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert