Vann þrjá milljarða í Eurojackpot

Það er ekki amalegt að vinna rúmlega þrjá milljarða.
Það er ekki amalegt að vinna rúmlega þrjá milljarða.

Einn stálheppinn einstaklingur í Póllandi var með fyrsta vinning í útdrætti kvöldsins í Eurojackpot og fær í sinn hlut hátt í 3,1 milljarð króna. Tveir Íslendingar unnu í Jókernum.

Fjórir voru með annan vinning í Eurojackpot og fá tæplega 19 milljónir á mann.

Þrír af þeim voru frá Þýskalandi og einn frá Tékklandi.

Tveir með vinning í Jókernum

En lukkunni var ekki lokið hjá Þjóðverjunum því að þrír af þeim níu sem unnu þriðja vinning í Eurojacpot voru þýskir.

Þá voru frændur okkar í Danmörku einnig heppnir því að fjórir Danir unnu þriðja vinning ásamt einum frá Slóvakíu og einum frá Póllandi.

Allir sem unnu þriðja vinning fá í sinn hlut 2,1 milljón krónur.

Eng­inn var með all­ar töl­ur rétt­ar og í réttri röð í Jókern­um en tveir miðahafar voru með ann­an vinn­ing og fá 125 þúsund krón­ur í vas­ann. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert