Braut gegn barni sem svaf

Maðurinn var handtekinn skömmu eftir að tilkynnt hafði verið um …
Maðurinn var handtekinn skömmu eftir að tilkynnt hafði verið um málið. mbl.is/Hari

Héraðsdóm­ur Reykja­ness hef­ur dæmt karl­mann í níu mánaða skil­orðsbundið fang­elsi fyr­ir kyn­ferðis­brot gegn barni.

Hon­um er enn frem­ur gert að greiða móður stúlk­unn­ar, fyr­ir hönd ólögráða dótt­ur sinn­ar, 500.000 kr. í miska­bæt­ur og gert að greiða all­an sak­ar­kostnað, eða 1,3 millj­ón­ir kr.

Héraðssak­sókn­ari gaf út ákæru á hend­ur mann­in­um í maí en brotið átti sér stað í des­em­ber 2022. Seg­ir í ákæru að hann hafi áreitt stúlku kyn­ferðis­lega um nótt á þáver­andi heim­ili manns­ins. Hann fór upp í rúm sem stúlk­an svaf í og vaknaði hún eft­ir það. Þá snerti maður­inn og káfaði á rassi henn­ar utan­k­læða og snerti síðan og káfaði á rassi henn­ar og kyn­fær­um innan­k­læða. Lét maður­inn ekki af hátt­sem­inni fyrr en stúlk­an stóð upp og gekk í burtu.

Fram kem­ur í dómi héraðsdóms, sem féll 13. des­em­ber en var birt­ur í dag, að sam­kvæmt frum­skýrslu lög­reglu sé upp­haf máls­ins það að móðir stúlk­unn­ar kom á lög­reglu­stöð sömu nótt og brotið átti sér stað. Þar greindi hún frá því að dótt­ir henn­ar hefði verið mis­notuð kyn­ferðis­lega af mann­in­um á heim­ili hans. Móðir stúlk­unn­ar kvað dótt­ur sína hafa varið aðfanga­dags­kvöldi með fjöl­skyldu föður­syst­ur sinn­ar og fengið að gista hjá þeim, sem hafi ekki verið óvana­legt. Stúlk­an hefði svo hringt og beðið með titrandi röddu um að verða sótt strax.

Kvað við að kvöldið hefði verið í þoku vegna ölv­un­ar

Lög­regl­an fór í kjöl­farið að heim­ili manns­ins þar sem hann var hand­tek­inn. Hann kvað við skýrslu­töku kvöldið hafa verið í þoku og að hann myndi ekki mikið sök­um ölv­un­ar, en hann kvaðst hafa drukkið mikið um kvöldið og einnig um dag­inn. Hann neitaði sök og taldi hátt­semi sam­kvæmt ákæru ósannaða.

Héraðsdóm­ur seg­ir að framb­urður stúlk­unn­ar fái stuðning í framb­urði bæði móður og föður henn­ar sem hafi borið um að hún hafi verið titrandi og skjálf­andi í sím­tal­inu frá heim­ili manns­ins, auk þess sem framb­urður móður styðji frá­sögn stúlk­unn­ar í öll­um aðal­atriðum.

Þá fái framb­urður stúlk­unn­ar ekki síst stuðning í framb­urði fyrr­ver­andi eig­in­konu manns­ins um að hann hafi áður sýnt af sér slíka hátt­semi, og að nokkru leyti í framb­urði manns­ins, sem kveðst ekki rengja framb­urð stúlk­unn­ar að neinu leyti og ekki hafa ástæðu til.

Mjög trú­verðug frá­sögn

„Ákærði kom sér sjálf­ur í ölv­un­ar­ástand og lagðist upp í rúm við hlið brotaþola vit­andi af því að hafa í slíku ástandi áreitt þáver­andi eig­in­konu kyn­ferðis­lega. Sam­kvæmt gögn­um máls­ins og vætti vitna var ákærði ölvaður en alls ekki ofurölvi á þeim tíma sem at­vikið átti sér stað. Ákærði kveðst einnig ekki hafa neina minn­ingu af at­b­urðinum og er því ekki við hans frá­sögn að styðjast held­ur ein­vörðungu frá­sögn brotaþola, sem að öllu fram­an­greindu gættu er af dóm­in­um met­in mjög trú­verðug og verður lögð til grund­vall­ar,“ seg­ir í dómn­um.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert