Þarf að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi

Landsréttur kvað upp úrskurð sinn í síðustu viku.
Landsréttur kvað upp úrskurð sinn í síðustu viku. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lands­rétt­ur hef­ur staðfest úr­sk­urð Héraðsdóms Reykja­vík­ur í máli eins hinna sak­felldu í Sól­heima­jök­uls­mál­inu um að hann skuli sæta áfram­hald­andi gæslu­v­arðhaldi.

Þann 3. des­em­ber var maður­inn sak­felld­ur fyr­ir stór­fellt fíkni­efna­laga­brot og skipu­lagða brot­a­starf­semi í Héraðsdómi Reykja­vík­ur. Var hon­um gert að sæta fang­elsi í fimm ár. Hef­ur hann áfrýjað dómn­um til Lands­rétt­ar, en ekki ligg­ur fyr­ir hvenær aðalmeðferð muni fara fram í mál­inu.

Héraðssak­sókn­ari krafðist þess í kjöl­farið að maður­inn myndi áfram sæta gæslu­v­arðhaldi þar til end­an­leg­ur dóm­ur liggi fyr­ir. Byggði héraðssak­sókn­ari kröfu sína á al­manna­hags­mun­um. 

„Þegar litið er til eðlis brot­anna sem dóm­felldi hef­ur verið sak­felld­ur fyr­ir er jafn­framt fall­ist á að gæslu­v­arðhald sé nauðsyn­legt með til­liti til al­manna­hags­muna,“ seg­ir í úr­sk­urði héraðsdóms. 

Maður­inn hef­ur sætt gæslu­v­arðhaldi frá 12. apríl. Er hon­um gert að sæta áfram gæslu­v­arðhaldi, þó ekki leng­ur en til 3. júní á næsta ári. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert