Krónan afhenti 12 hjálparsamtökum samtals 500 gjafakort sem safnað var fyrir í jólasöfnun Krónunnar á aðventunni. Viðskiptavinir söfnuðu fimm milljónum króna og jafnaði Krónan sömu upphæð á móti. Söfnuðust því alls tíu milljónir króna í jólastyrkjasöfnun matvöruverslunarinnar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Krónunni.
„Við hjá Krónunni erum gífurlega þakklát okkar viðskiptavinum og þeirra jákvæðu viðbrögðum við þessu verðuga málefni. Þetta er í fimmta skipti sem við bjóðum viðskiptavinum að taka þátt í söfnuninni þar sem margt smátt gerir eitt stórt,” er haft eftir Guðrúnu Aðalsteinsdóttur, framkvæmdastjóra Krónunnar, í tilkynningunni.
„Það er gott að finna fyrir gjafmildi og samhug viðskiptavina en söfnunin fer til samtaka sem sinna matarúthlutunum fyrir jólin í nærsamfélagi verslana Krónunnar.“
Jafnframt segir að söfnunin hafi farið þannig fram að viðskiptavinum bauðst að styrkja fyrir 500 krónur eða meira og Krónan jafnaði sömu upphæð á móti. Upphæðin renni beint til hjálparsamtaka sem styðja þau sem þurfa á mataraðstoð að halda fyrir jólin. Styrkirnir séu veittir í formi gjafakorta svo að styrkþegar geti sjálfir valið í sína matarkörfu fyrir hátíðirnar.
Góðgerðarsamtökin sem hlutu styrki í formi gjafakorta í ár voru velferðarsvið Reykjanesbæjar, Sjóðurinn góði í Árnessýslu, Stórólfshvolskirkja, Rauði kross Víkursvæðis, Styrktarsjóður Landakirkju, Jólasjóður Fjarðabyggðar, Velferðarsjóður Eyjafjarðarsvæðis, Mæðrastyrksnefnd Akraness, Mæðrastyrksnefnd í Kópavogi, Soroptimistaklúbbur Mosfellssveitar, Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar og Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur.