„Nauðsynlegt að fá mig hingað núna“

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og félags- og húsnæðismálaráðherra.
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og félags- og húsnæðismálaráðherra. mbl.is/Árni Sæberg

„Ég hlakka mikið til. Þetta er krefj­andi verk­efni og það er nauðsyn­legt að fá mig hingað núna,“ seg­ir Inga Sæ­land, fé­lags- og hús­næðismálaráðherra, en hún tók við lykl­un­um að ráðuneyt­inu fyrr í dag.

Aðspurð seg­ist henni líða dá­sam­lega en að allt sé enn svo­lítið óraun­veru­legt.

„Ég er ekki al­veg búin að lenda en ég er búin að setja hjól­in niður núna, fyrst ég er kom­in með lykl­ana og þenn­an dá­sam­lega fal­lega blóm­vönd.“

Stutt er til jóla og eins og flest­ir vita hef­ur Inga haft í nógu að snú­ast und­an­farn­ar vik­ur og ekki endi­lega haft mik­inn tíma fyr­ir jó­laund­ir­bún­ing.

Gleði og gam­an með fjöl­skyld­unni

Hvernig verða næstu dag­ar?

„Á morg­un ætl­ar Kristrún að kalla okk­ur sam­an, nýr for­sæt­is­ráðherra ætl­ar að kalla sam­an nýju rík­is­stjórn­ina sína, og síðan fer ég heim og byrja að und­ir­búa jól­in. Þannig að jú, jú, eitt­hvað verður nú um gleði og gam­an með fjöl­skyld­unni og ég hlakka bara til.“

Þá hlakk­ar hún til að geta hafið jó­laund­ir­bún­ing­inn þar sem hún seg­ist hafa eig­in­lega misst af öllu slíku í ár en nefn­ir að hún kveiki þó á út­varp­inu þegar hún geti og rauli með jóla­lög­un­um.

„Það er líka þessi ynd­is­lega stemmn­ing sem fylg­ir því.“

Bjarni Benediktsson afhenti Ingu Sæland lyklana að félags- og húsnæðismálaráðuneytinu …
Bjarni Bene­dikts­son af­henti Ingu Sæ­land lykl­ana að fé­lags- og hús­næðismálaráðuneyt­inu fyrr í dag. Morg­un­blaðið/Á​rni Sæ­berg

Ger­ir „heims­ins bestu humarsúpu“

Þá nefn­ir hún upp­setn­ingu jóla­ljós­anna sem einn skemmti­leg­asta jó­laund­ir­bún­ing­inn og vill hún helst hafa jóla­ljós út um allt.

„Mér finnst fal­leg­ast af þessu öllu að vera með sem minnst af bein­um lýs­ing­um, ég vil bara jóla­ljós helst út um allt og und­ir­búa góðan mat með fjöl­skyld­unni.“

Seg­ir Inga að henn­ar hlut­verk á aðfanga­dags­kvöld sé svo að gera „heims­ins bestu humarsúpu“ sem oft­ast nær sé for­rétt­ur­inn á heim­il­inu þann dag og svo á eft­ir fylgi „annaðhvort fyllt lamba­læri eða svína­ham­bó, eins og maður seg­ir.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert