Fundaði með starfsfólki í fjóra tíma í gær

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mætir á ríkisstjórnarfundinn í dag.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mætir á ríkisstjórnarfundinn í dag. mbl.is/Karítas

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, nýr ut­an­rík­is­ráðherra, fundaði strax í gær, eft­ir að hafa tekið við lykl­um ráðuneyt­is­ins frá for­vera sín­um, með nokkr­um starfs­mönn­um ráðuneyt­is­ins. Var mark­miðið að koma strax vinnu við ákveðin mál af stað.

Þetta sagði Þor­gerður eft­ir rík­is­stjórn­ar­fund í morg­un. Eft­ir hann fundaði hún áfram með þeim Kristrúnu Frosta­dótt­ur og Ingu Sæ­land, leiðtog­um hinna stjórn­ar­flokk­anna.

Örygg­is­mál æðstu stjórn­enda, starfs­hætt­ir og þing­mála­skrá

„Við vor­um að fara yfir mál­in, þessi praktísku mál sem ráðherr­ar í nýrri rík­is­stjórn þurfa að fara yfir. Það var m.a. verið að fara yfir starfs­regl­urn­ar,“ sagði Þor­gerður spurð um hvað hafi verið rætt á rík­is­stjórn­ar­fund­in­um. Bæt­ir hún við að einnig hafi verið rætt um stefnu­yf­ir­lýs­ing­una og fleiri mál sem framund­an séu.

Sam­kvæmt til­kynn­ingu frá stjórn­ar­ráðinu eft­ir fund­inn var einnig rætt um siðareglu ráðherra, þing­mála­skrá, ör­ygg­is­mál æðstu stjórn­ar rík­is­ins og staðgengla for­sæt­is­ráðherra, en full dag­skrá fund­ar­ins er hér að neðan:

  1. Stefnu­yf­ir­lýs­ing rík­is­stjórn­ar Sam­fylk­ing­ar, Viðreisn­ar og Flokks fólks­ins
  2. Regl­ur um starfs­hætti rík­is­stjórn­ar
  3. Ráðherra­nefnd­ir
  4. Siðaregl­ur ráðherra
  5. Fræðsla fyr­ir ráðherra 
  6. Regl­ur um ör­ygg­is­mál æðstu stjórn­ar rík­is­ins
  7. Þing­mála­skrá
  8. Staðgengl­ar for­sæt­is­ráðherra
  9. Sam­starfs­ráðherra Norður­landa

„Ákveðin eft­ir­vænt­ing og spenna

Fund­ur­inn dróst nokkuð og var lengri en áætlað hafði verið. Þor­gerður seg­ir slíkt ekk­ert óeðli­legt þegar um fyrsta fund rík­is­stjórn­ar sé að ræða. „Það er ákveðin eft­ir­vænt­ing og spenna að setj­ast niður og ræða mál­in,“ seg­ir hún.

Þor­gerður sagði jafn­framt að rætt hafi verið um þær aðgerðir sem ætti að fara í strax í upp­hafi árs. Spurð nán­ar um hvaða aðgerðir það séu sagði Þor­gerður að hún und­ir­strikaði hvaða máli það skipti að vinna að hagræðingu í rík­is­kerf­inu og að ýta úr vör verk­efn­um sem ýta und­ir efna­hags­leg­an stöðug­leika og ábyrg rík­is­fjár­mál. Þá hafi verið rætt um hvaða fyr­ir­komu­lag þau ætli að hafa við að ná utan um vanda barna og ung­menna, um sam­göngu- og innviðamál og fleiri mál.

„Það var mik­ill ein­hug­ur og vænt­ing á þess­um fundi,“ bætti hún við.

Fundaði með ráðuneyt­is­stjóra og fleir­um

Spurð um það af hverju lykla­skipt­in hafi verið á sunnu­degi en ekki í dag seg­ir Þor­gerður að þau hafi viljað hefjast handa strax og hægt var. „Bara að byrja að vinna,“ seg­ir hún. Í kjöl­far lykla­skipt­anna seg­ir Þor­gerður að hún hafi fundað með ráðuneyt­is­stjóra, starfs­fólki á skrif­stofu ráðherra, prótó­kol­stjóra o.fl. í um fjór­ar klukku­stund­ir til að fara yfir mál­efni og verk­efni framund­an. „Við erum strax byrjuð að vinna og setja mál í far­veg.“

Þá seg­ir hún að í næstu viku muni hún funda með skrif­stofu­stjór­um.

Hún tek­ur fram að hún hafi rætt við ráðuneyt­is­stjóra um þau mál­efni sem rík­is­stjórn­in væri að leggja áherslu á. „Það kem­ur eng­um á óvart að ég er að ýta und­ir vinn­una strax við ör­ygg­is- og varn­ar­stefn­una.“

Byggja á vináttu sem hef­ur þró­ast

Beint í kjöl­far rík­is­stjórn­ar­fund­ar­ins og viðtala sem veitt voru fjöl­miðlum héldu val­kyrj­urn­ar svo­kölluðu til fund­ar, en Þor­gerður seg­ir að þar sé meðal ann­ars byggt á þeim sam­skipt­um sem þær hafi átt síðustu vik­urn­ar og vináttu sem hafi þró­ast. Þær ætli sér að koma vinnu við fjöl­mörg mál strax í gang. „Þetta verður verk­stjórn út allt kjör­tíma­bilið.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert