Spá 13-18 stiga frosti í borginni

Frost getur farið niður í 13 til 18 stig.
Frost getur farið niður í 13 til 18 stig. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íbúar höfuðborgarsvæðisins geta átt von á töluverðum kulda um helgina þar sem frost getur farið niður í 13 til 18 stig.

Eiríkur Örn Jóhannesson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir í samtali við mbl.is að þrátt fyrir töluvert frost megi gera ráð fyrir bjartviðri og norðlægri átt sem verður þó ekki mjög hvöss. 

Hann segir lægðina sem gengur nú yfir sunnan- og vestanvert landið koma frá Grænlandsjökli en þegar sú lægð fer að hreyfast í burtu dregur hún með sér norðlægari áttir frá Norður-Íshafi og kuldann í kjölfarið.

Tveggja stafa tala um áramótin

Aðspurður segir Eiríkur líklegt að kuldinn verði viðvarandi fram á nýtt ár og geta íbúar höfuðborgarsvæðisins gert ráð fyrir því að ganga inn í komandi ár með frost í tveggja stafa tölu.

„Þetta er orðið talsvert frost og ekki eitthvað sem við sjáum vikulega eða mánaðarlega hérna í borginni,“ segir Eiríkur.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert