Stormur og dimm él

Vindaspá Veðurstofunnar klukkan 11 jóladagsmorgun.
Vindaspá Veðurstofunnar klukkan 11 jóladagsmorgun. Kort/Veðurstofa Íslands

Í dag er spáð suðvestanátt og verður víða hvassviðri eða stormur með dimmum éljum. Á þetta sérstaklega við á sunnan- og vestanverðu landinu. Frost 0-5 stig.

Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands.

Hlýnar heldur

Á öðrum degi jóla er útlit fyrir stífa suðvestanátt en hvassvirði með suðuströndinni.

„Það hlýnar heldur og úrkoman fer yfir í slyddu og jafnvel rigningu sunnanlands. Snjókoma eða él í öðrum landshlutum en að mestu þurrt á Austurlandi,“ segir í hugleiðingunum.

Á föstudaginn verður minnkandi suðvestanátt með éljum, þó þurru veðri norðaustan til.

Veðurvefur mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert