Spursmál: Hvað gerir Bjarni Benediktsson á nýju ári?

Bjarni Benediktsson hefur verið formaður Sjálfstæðisflokksins frá 2009. Í fyrsta sinn í 11 ár er hann í stjórnarandstöðu á þingi. Mun hann halda áfram sem formaður á nýju ári og hvenær fer landsfundur fram?

Svara við þessum spurningum er leitað í nýjasta þætti Spursmála þar sem Bjarni sjálfur mætti í settið og sat fyrir svörum.

Þátturinn var sýndur hér á mbl.is fyrr í dag en upptöku af honum má nálgast í spilaranum hér að ofan, á Spotify og YouTube og er hún öllum aðgengileg.

Mistök eða óhjákvæmileg ákvörðun?

Í þættinum svaraði Bjarni einnig spurningum um þá ákvörðun sína að efna til kosninga þann 30. nóvember síðastliðinn. Voru það mistök af hans hálfu eða var ákvörðunin óhjákvæmileg?

Eins var Bjarni spurður út í efni nýs stjórnarsáttmála Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins.

Spádómskúlan á lofti

Í fyrri hluta þátturinn var rætt við þau Björn Inga Hrafnsson, ritstjóra Viljans og Vigdísi Häsler, verkefnastjóra Kleifa fiskeldis á Siglufirði. Þar rýndu þau í pólitíkina, bæði það sem gerst hefur nú þegar en einnig spá þau í spilin um það sem framundan er.

Fylgstu með Spursmálum hér á mbl.is alla föstudaga klukkan 14.

Vigdís Häsler, Bjarni Benediktsson og Björn Ingi Hrafnsson eru gestir …
Vigdís Häsler, Bjarni Benediktsson og Björn Ingi Hrafnsson eru gestir Stefáns Einars Stefánssonar í Spursmálum að þessu sinni. Samsett mynd/mbl.is/Kristófer Liljar
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert