Hvað skulu gæludýraeigendur forðast yfir áramót

Áramótin og meðfylgjandi flugeldar geta reynst fjórfætlingum erfiðar aðstæður.
Áramótin og meðfylgjandi flugeldar geta reynst fjórfætlingum erfiðar aðstæður. Ljósmynd/Colourbox

Ára­mót og flug­eld­ar geta reynst fjór­fætl­ing­um erfið.

Hávaðahræðsla er til að mynda þekkt hjá hund­um og kött­um og þá sér­stak­lega hræðsla við flug­elda. Sum­ir eru hrædd­ir við hljóðin og drun­urn­ar en ljós­in geta líka vakið hræðslu. Þetta seg­ir í til­kynn­ingu til dýra­eig­enda frá Dýra­spítal­an­um í Garðabæ.

Eðli­legt sé að dýri bregði eða það verði hrætt við læt­in en jafni sig uns hávaðanum lýk­ur. Sum dýr eigi þó erfiðara með að jafna sig og geti þurft aðstoð í kring­um ára­mót.

Mik­il­væg­ast sé þá að skilja dýrið ekki eitt eft­ir á þess­um tíma.

Þá sé einnig mik­il­vægt að minnka allt áreiti á dýrið og draga úr hávaða eft­ir bestu getu, finna dýr­inu skjól og nota jafn­vel lyf til að minnka hræðslu og kvíða og láta það finna til ör­ygg­is.

Lyfja­notk­un

Í til­kynn­ing­unni seg­ir að lyf geti slegið á mesta ótta dýrs­ins við ástandið en verk­un geti verið mis­mun­andi eft­ir hverju þeirra.

Slík lyf séu lyf­seðils­skyld og nauðsyn­legt sé að fá þau fyr­ir hvert dýr fyr­ir sig og fylgja leiðbein­ing­um dýra­lækn­is.

Þá sé ekki skyn­sam­legt að gefa dýr­um lyf sem fólk á sjálft heima þar sem skammt­ar og verk­un þeirra hæfa ekki dýr­um.

Þá er tekið fram að eðli­legt sé að hrædd­ir kett­ir borði lítið eða jafn­vel ekk­ert á hræðslu­tíma.

Fjöl­skyldumeðlim­ir haldi rónni

Tekið er fram að í und­ir­bún­ingi fyr­ir kvöldið sé gott að nota tæki­færið þegar ró er í ná­grenn­inu til að viðra dýr­in vel áður en læt­in hefjast.

Þá sé skyn­sam­legt að halda dýr­un­um inni þegar mestu læt­in eru, ann­ars geti þau rokið í burtu í hræðslukasti og týnst.

Jafn­vel óhrædd­um dýr­um sé gott að halda inni. Óhrædd­ir kett­ir geti farið að elta flug­eld­ana og óhöpp eða slys geti orðið til þess að áður óhrædd­ur hund­ur sé markaður af ótta fyr­ir lífstíð.

Þá skuli ekki skamma hund fyr­ir smá­slys sem geta orðið sök­um hræðslu.

Mik­il­vægt sé fyr­ir fjöl­skyldumeðlimi að gera sem minnst úr lát­un­um, halda sjálf ró sinni og leyfa hund­in­um að leita afsíðis eða ör­ygg­is hjá ein­hverj­um.

Mælt er með því að sitja hjá þeim og veita þeim stuðning, það ger­ir maður helst með því að halda ró sinni sjálf­ur og vera sem eðli­leg­ast­ur. Þá er gott að tala til dýr­anna í ró­leg­um og lág­um tón.

Í óvissuaðstæðum eiga dýrin það til að leita sér skjóls …
Í óvissuaðstæðum eiga dýr­in það til að leita sér skjóls á ör­ugg­um stöðum. Ljós­mynd/​Krist­inn Ingvars­son

Leitað í skjól

Í óvissuaðstæðum eiga dýr­in það til að leita sér skjóls á ör­ugg­um stöðum.

Hund­ar leita gjarn­an í skjól und­ir hús­gögn­um eða í búr­inu sínu, gott er þá að breiða teppi yfir búrið til að stuðla að meiri ör­ygg­is­til­finn­ingu.

Þá eru kett­ir mjög sniðugir að finna sér góða felu­staði. Gott er að veita þeim aðgang að búri sem breitt er yfir eða her­bergi þar sem þeir geta ekki farið sér að voða. Hafa kveikt ljós og kveikt á út­varpi eða sjón­varpi.

Aldrei skal neyða hund úr fylgsni sínu, það eyk­ur á ótt­ann og um leið lík­urn­ar á að hund­ur­inn bíti frá sér í varn­ar­skyni. Mik­il­vægt er að hund­ur­inn fái að leita sér skjóls og ekki sé komið í veg fyr­ir það.

Þá skal var­ast að börn kom­ist að hrædd­um dýr­um.

Hund­ur í ofsa­hræðslu get­ur ekki brugðist öðru­vísi við en reyna að verja sig ef reynt er að ná í hann úr skjóli sem hann hef­ur leitað í.

Þá er eðli­legt að dýr haldi sig til hlés í nokkra daga eft­ir læt­in. 

Til að mynda get­ur hund­ur verið var um sig og ein­staka hund­ur þorir þá ekki út að gera þarf­ir sín­ar. Það líður þó hjá á nokkr­um dög­um.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert