Allt kapp lagt á að bregðast við röskuninni

Mynd af ruslatunnum sem deilt var í færslu á jóladag …
Mynd af ruslatunnum sem deilt var í færslu á jóladag inn á Facebook-síðuna Íbúðar Fljótsdalshéraðs. Ljósmynd/Facebook

Allt kapp verður lagt á að bregðast við rösk­un á sorp­hirðu í Múlaþingi í upp­hafi nýs árs. Beðist er af­sök­un­ar á þeirri rösk­un sem hef­ur orðið. 

Svo seg­ir í til­kynn­ingu á vef sveit­ar­fé­lags­ins, en í gær greindi mbl.is frá því að dæmi er um að sorp hafi ekki verið sótt síðan um miðjan nóv­em­ber í sveit­ar­fé­lag­inu. Mik­il umræða hef­ur skap­ast um mál­efnið í íbúa­hóp­um á sam­fé­lags­miðlum. 

Múlaþing birti í gær sorp­hirðuda­ga­tal fyr­ir árið 2025 fyr­ir Seyðis­fjörð, Djúpa­vog og dreif­býli, Eg­ilsstaði og Fella­bæ og dreif­býli Fljóts­dals­héraðs.

Gert er ráð fyr­ir nokk­urra daga svig­rúmi í upp­hafi árs til að bregðast við þeirri rösk­un sem hef­ur orðið á hirðu á ákveðnum stöðum.

Fjöl­marg­ar ábend­ing­ar og kvart­an­ir hafa borist sveit­ar­fé­lag­inu vegna sorp­hirðu und­an­farn­ar vik­ur og verður allt kapp lagt á að bregðast við í upp­hafi nýs árs.“

Þá seg­ir að daga­töl­in séu til viðmiðunar því los­un­ar­dag­ar geta breyst án fyr­ir­vara til dæm­is vegna veðurs. Al­mennt á sorp­hirðu þó ekki að skeika meira en 1 til 2 dög­um. 

Samn­ings­stöðvun í kjöl­far kæru

Í til­kynn­ingu sem  birt­ist á vef Múlaþings um miðjan des­em­ber sagði að sorp­hirðufyr­ir­tækið Kubb­ur hafi form­lega tekið við meðhöndl­un úr­gangs í sveit­ar­fé­lag­inu sem var áður í hönd­um Íslenska Gama­fé­lags­ins. 

Samn­ing­ur við Kubb var und­ir­ritaður þann 6. des­em­ber til næstu fjög­urra ára í kjöl­far útboðs. Samn­ing­ur­inn var und­ir­ritaður rúm­um mánuði seinna en gert var ráð fyr­ir í útboði vegna sjálf­krafa samn­ings­stöðvun­ar í kjöl­far kæru. 

Skamm­tíma­samn­ing­ar voru gerðir í millitíðinni og var von­ast eft­ir því að sorp­hirða sam­kvæmt los­un­ar­áætl­un héld­ist en það gekk ekki eft­ir. 

UHA Um­hverf­isþjón­usta ehf. kærði ákvörðun Múlaþings og Fljóts­dals­hrepps um að hafna til­boði fyr­ir­tæk­is­ins í útboði til úr­gangsþjón­ustu í ág­úst til kær­u­nefnd­ar útboðsmá­la. Öllum kröf­um fyr­ir­tæk­is­ins var hafnað af nefnd­inni 2. des­em­ber. 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert