Lát hjóna í Neskaupstað: Ákærður fyrir að myrða hjón með hamri

Frá lögregluaðgerðum í Neskaupstað í sumar.
Frá lögregluaðgerðum í Neskaupstað í sumar. Ljósmynd/Aðsend

Karl­maður á fimm­tugs­aldri hef­ur verið ákærður fyr­ir að verða hjón­um á átt­ræðis­aldri að bana á heim­ili þeirra í Nes­kaupstað í ág­úst.

Ákær­an var send til Héraðsdóm Aust­ur­lands þann 20. des­em­ber og verður málið þing­fest í Héraðsdómi Aust­ur­lands í næstu viku.

Í ákær­unni seg­ir að maður­inn hafi veist að hjón­um inn­an­dyra með hamri og hafi slegið þau bæði oft með hamr­in­um, einkum í höfuð, allt með þeim af­leiðing­um að þau hlutu bæði um­fangs­mikla og al­var­lega áverka á höfði, þar á meðal ít­rekuð brot á höfuðkúp­um, áverka á heila og smærri áverka á öðrum hlut­um lík­ama, en hjón­in lét­ust bæði af völd­um áverka á höfði.

Ákærður fyr­ir vopna­laga­brot

Þá er maður­inn einnig ákærður fyr­ir vopna­laga­brot fyr­ir að hafa haft í fór­um sín­um ut­an­dyra við Kaup­vang á Eg­ils­stöðum hníf með 15 sentí­metra blaðlengd.

Þess er kraf­ist að maður­inn verði dæmd­ur til refs­ing­ar og til greiðslu alls sak­ar­kostnaðar. Til vara er þess kraf­ist að hon­um verði gert að sæta vist­un á viðeign­andi stofn­un og að hon­um verði gert að greiða all­an sak­ar­kostnað.

Hann er kraf­inn um 48 millj­ón­ir króna í miska­bæt­ur og tæp­ar 3 millj­ón­ir króna í skaðabæt­ur vegna kostnaðar við út­för hjón­anna og þrifa.

Maður­inn verður áfram vistaður á viðeig­andi stofn­un en dóm­ari hef­ur fall­ist á kröfu um vist­un til 14.mars.

Neitaði að hafa verið vald­ur að dauða hjón­anna

Í gögn­um máls­ins kem­ur fram að maður­inn hafi viður­kennt við yf­ir­heyrsl­ur að hafa verið á heim­ili hjón­anna í Nes­kaupstað en neitaði að hafa verið vald­ur að dauða þeirra. Þau hafi þegar verið lát­in. Útskýr­ing­ar hans á því hvers vegna hann hafi ekki til­kynnt um slasað eða látið fólk þóttu ekki trú­verðugar.

Að sögn vitna sást maður­inn við hús hjón­anna að kvöldi 21. ág­úst og segj­ast vitni skömmu síðar hafa heyrt „þung bank-högg“ úr íbúðinni. Sjúkra­flutn­inga­menn komu fyrst­ir á vett­vang og greindu lög­regl­unni frá því að fólkið væri greini­lega látið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert