6.400 manns voru atvinnulausir

Atvinnuleysi dróst lítillega saman.
Atvinnuleysi dróst lítillega saman. mbl.is/Kristinn Magnússon

Í nóvember síðastliðnum voru 6.400 manns atvinnulausir, samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar.

Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 2,8%, hlutfall starfandi var 77,2% og atvinnuþátttaka 79,4%.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi dróst saman um 0,4 prósentustig á milli mánaða. Hlutfall starfandi lækkaði um 2,2 prósentustig og atvinnuþátttaka minnkaði um 2,6% prósentustig.

Mælt atvinnuleysi í nóvember var 2,4%, mæld atvinnuþátttaka var 78,0% og hlutfall starfandi var samkvæmt mælingu 76,1%.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert