Ferðamenn ráku upp stór augu í dag við Ytri Tungu á Snæfellsnesi í morgun, þar sem selir flatmöguðu í fjörunni.
Haraldur Gíslason, bílstjóri og leiðsögumaður, birti myndir og myndskeið af dýrunum á Facebook-reikningi sínum í dag, en hann átti leið hjá með hóp ferðalanga.
Segir Haraldur sjónina engu líka enda hafi verið kjöraðstæður til að sjá selina koma inn fyrir brimgarðinn í dag.
„Þegar mest var þá taldi ég 25 seli sem voru að koma inn fyrir brimgarðinn. Þeir koma inn fyrir á morgnana þegar flæðir frá og liggja á steinunum.“
Sjálfur var hann með minni hóp meðferðis en segir að á bilinu 150-200 ferðamenn hafi verið á svæðinu og að allir hafi sýnt dýrunum tillitsemi og virt skilti sem kveða á um að fólk sé ekki með hávaða.
„Þau voru alveg agndofa yfir þessu. Ég ætlaði aldrei að ná þeim inn í bíl aftur enda hafa þau aldrei séð villtar skepnur svona nálægt,“ segir Haraldur.
Spurður hvort selirnir hafi kippt sér upp við ferðamennina svarar hann neitandi.
„Þeir eru jafn forvitnir um okkur og við um þá.“