Ökumaður slapp ómeiddur eftir að bifreið hans hafnaði á skilti og endaði úti í sjó við gatnamót Eyjafjarðarbrautar eystri og Leiruvegar við Skógarböðin í Eyjafirði um miðnætti í gærkvöld.
Óhappið varð með þeim hætti að gaddar á skó ökumannsins sem hann var í festust í bensíngjöfinni og náði hann ekki að lyfta fætinum af henni með þeim afleiðingum að bifreiðin skall á skilti og endaði úti í sjó.
Ökumaðurinn, sem var fullorðinn maður, sat í bifreiðinni þar sem sjór var upp á miðja hurð þegar lögregla kom á vettvang og aðstoðaði hún hann við að komast í land.
Að sögn lögreglunnar á Akureyri er bílinn talsvert skemmdur en ökumaðurinn reyndist óslasaður.