Kringlan „komin á fullt skrið“

Margir hafa gert sér ferð í Kringluna síðan útsölur byrjuðu …
Margir hafa gert sér ferð í Kringluna síðan útsölur byrjuðu annan janúar. Myndin er úr safni. Morgunblaðið/Hari

Árið byrj­ar af krafti í Kringl­unni en gíf­ur­lega mik­il aðsókn hef­ur verið í versl­un­ar­miðstöðina fyrstu dag­ana í janú­ar.

Þetta seg­ir Bald­vina Snælaugs­dótt­ir, markaðsstjóri Kringl­unn­ar, í sam­tali við mbl.is.

Mik­il aðsókn var í Kringl­una á milli jóla og ný­árs þar sem fólk var komið til að skipta og skila gjöf­um sem og und­ir­búa ára­mót­in.

„Svo byrjuðu út­söl­urn­ar bara af full­um krafti bara strax ann­an janú­ar og það er eig­in­lega bara sama sag­an. Það er búið að vera mjög mikið að gera,“ seg­ir Bald­vina.

„Ég er nú ekki kom­in með töl­ur fyr­ir dag­inn í dag en það var al­veg rosa­lega mik­il aðsókn í gær. Það virðist vera að fólk sé að kynna sér út­söl­urn­ar og gera góð kaup. Vet­ur­inn er nátt­úru­lega skoll­inn á af þunga og marg­ir að skoða kulda­föt­in og skóna.“

Baldvina Snælaugsdóttir, markaðsstjóri Kringlunnar.
Bald­vina Snælaugs­dótt­ir, markaðsstjóri Kringl­unn­ar. mbl.is/​Eyþór

Janú­ar fjör­ug­ur mánuður

Aðspurð seg­ir hún út­söl­una vera út janú­ar.

Er þá janú­ar sá mánuður á ár­inu þar sem mest er að gera?

„Alla­vega fram­an af janú­ar er rosa­lega mikið að gera.“

Nefn­ir Bald­vina að enn meiri verðlækk­an­ir komi svo þegar líða fer á mánuðinn.

„Þannig, já, það má al­veg segja að þetta sé fjör­ug­ur mánuður.“

Á fljúg­andi ferð eft­ir að allt opnaði á ný

Aðspurð seg­ir Bald­vina aðsókn í des­em­ber hafa verið vel yfir meðallagi og að það sé einnig raun­in fyrstu dag­ana í janú­ar.

„Þetta lof­ar mjög góðu og Kringl­an er líka kom­in á fullt skrið eft­ir að hafa kannski svona haltrað seinni helm­ing árs­ins í fyrra.“

Vís­ar þar markaðsstjór­inn til brun­ans sem varð á þaki Kringl­unn­ar og olli mikl­um vatns- og reyk­skemmd­um í júní og hafði það áhrif á fjölda versl­ana í versl­un­ar­kjarn­an­um.

„Eft­ir að allt opnaði aft­ur í lok nóv­em­ber þá erum við búin að vera al­veg á fljúg­andi ferð.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert