Neitaði sök í Neskaupstaðarmáli

Frá lögregluaðgerðum í Neskaupstað síðasta sumar.
Frá lögregluaðgerðum í Neskaupstað síðasta sumar. Ljósmynd/Aðsend

Karl­maður á fimm­tugs­aldri neitaði sök í mann­dráps­máli í Nes­kaupstað við þing­fest­ingu máls­ins í Héraðsdómi Aust­ur­lands nú eft­ir há­degi í dag. Ekki var farið fram á yf­ir­mat á geðmati sem gert var á mann­in­um við rann­sókn þess hjá lög­reglu.

Maður­inn hef­ur sætt gæslu­v­arðhaldi og vist­un síðan í ág­úst þegar hann var hand­tek­inn. Er hann grunaður um að hafa valdið dauða hjóna á átt­ræðis­aldri sem fund­ust lát­in á heim­ili sínu í Nes­kaupstað í ág­úst. 

Málið er rekið fyrir Héraðsdómi Austurlands á Egilsstöðum.
Málið er rekið fyr­ir Héraðsdómi Aust­ur­lands á Eg­ils­stöðum. mbl.is/​Sig­urður Aðal­steins­son

Að sögn vitna sást maður­inn við hús hjón­anna að kvöldi 21. ág­úst og segj­ast vitni skömmu síðar hafa heyrt „þung bank-högg“ úr íbúðinni. Sjúkra­flutn­inga­menn komu fyrst­ir á vett­vang og greindu lög­regl­unni frá því að fólkið væri greini­lega látið. 

Þing­haldið fór að miklu leyti fram í gegn­um fjar­funda­búnað, en maður­inn var sjálf­ur ekki í dómsal. Það voru ekki held­ur sak­sókn­ari eða verj­andi, sem nýttu sér fjar­funda­búnað.

Maður­inn er auk mann­dráps ákærður fyr­ir vopna­laga­brot og játaði hann sök í þeim hluta ákær­unn­ar.

Fram kom hjá verj­anda manns­ins að ekki væri farið fram á yf­ir­mat á geðmat­inu, þar sem matið sem lægi fyr­ir væri svo af­ger­andi.

Næsta fyr­ir­taka máls­ins verður 16. janú­ar klukk­an 13:00, en þá mun verj­andi skila grein­ar­gerð sinni. Í þing­fest­ing­unni var einnig rætt um mögu­leg­an tíma á aðalmeðferð og eft­ir sam­ræðu við verj­anda og sak­sókn­ara horfði dóm­ari til byrj­un­ar mars, en eng­in end­an­leg ákvörðun var þó tek­in um þá tíma­setn­ingu.

Í þing­fest­ing­unni kom jafn­framt fram að dóm­ar­inn væri að skoða að hafa fjöl­skipaðan dóm, þ.e. að hafa meðdóm­ara með sér í mál­inu. Hljómaði eins og dóm­ar­inn væri áfram um það, en ekki væri hins veg­ar búið að finna meðdóm­ara.

Þing­haldið var ekki lokað, en hvorki verj­andi né sækj­andi fóru fram á það. Hins veg­ar var því haldið til haga að vitað væri af liðum inn­an máls­ins sem gætu kallað á að farið yrði fram á að sá hluti máls­ins væri lokaður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert