Færanlegar skólastofur settar upp við MS

Mygla greindist í Menntaskólanum við Sund árið 2023.
Mygla greindist í Menntaskólanum við Sund árið 2023. Morgunblaðið/Árni Sæberg

Sex færanlegar kennslustofur verða settar upp á lóð Menntaskólans við Sund. Stofurnar verða teknar í notkun næsta haust. Helga Sigríður Þórsdóttir, rektor MS, segir að gleðiefni sé að betri aðstaða fáist með umræddum stofum en að enn sé beðið eftir ákvörðun um framtíð húsnæðis skólans.

„Nú eru akkúrat tvö ár síðan við fengum fyrstu mygluskýrsluna og við höfum verið með þúsund fermetra lokaða síðan þá. Það hefur því þrengt ansi mikið að okkur,“ segir hún en af þessum sökum hafa 60 færri nemendur verið við nám í MS síðan myglan kom upp.

Talsverðar rakaskemmdir komu upp á fyrstu og þriðju hæð skólahússins. Helga Sigríður segir að færanlegu kennslustofurnar séu bara til að redda því ástandi sem nemendur og kennarar þurfa nú að búa við.

„Það þarf að endurbyggja þessi hús eða taka ákvörðun um hvað á að gera. Það hefur dregist að taka þessa ákvörðun. Ég leyfi mér að orða það sem svo að við höfum verið eins og skilnaðarbarn hjá síðustu ríkisstjórn. Menntamálaráðherra var allur af vilja gerður en fékk ekki fé frá fjármálaráðherra sem var í öðrum stjórnmálaflokki. Nú þegar komin er ný ríkisstjórn byrja ég aftur að pressa á að eitthvað verði gert. Menntamálaráðuneytið er mjög vel upplýst um stöðu mála og starfsfólk þar ætlar að upplýsa nýjan ráðherra.“

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert