Isavia fái starfsleyfi út árið 2032

Til stendur að reisa nýja byggð við Skerjafjörð, vestan við …
Til stendur að reisa nýja byggð við Skerjafjörð, vestan við norður-suður-brautina. Fjótlega verður ráðist í smíði brúar við brautarendann, sem liggja mun yfir í Kópavog. mbl.is/Árni Sæberg

Isavia innanlandsflugvellir ehf. fá starfsleyfi fyrir Reykjavíkurflugvöll til næstu átta ára eða til ársloka 2032. Þetta er niðurstaða skipulagsfulltrúa Reykjavíkur.

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa sl. haust var lagður fram tölvupóstur Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar Isavia innanlandsflugvalla ehf. um endurnýjun á starfsleyfi Reykjavíkurflugvallar fyrir mengandi starfsemi, þ.e. rekstri flugvallar, bifreiða- og vélaverkstæðis og olíugeymis til eigin nota.

Óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa um hvort starfsemin sé í samræmi við skipulag og um gildistíma starfsleyfis en Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur gefur alla jafna út starfsleyfi til 12 ára. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. desember 2024. Umsögn skipulagsfulltrúa var samþykkt.

Fram kemur í umsögninni að í gildi sé deiliskipulag Reykjavíkurflugvallar staðfest í B-deild Stjórnartíðinda 13. júní 2016.

Einungis mannvirki sem tengist flugi eða rekstri flugvallarins með beinum hætti er heimilt að reisa á svæðinu í samræmi við takmarkanir og skipulagsreglur fyrir flugvallarsvæðið. Öll mannvirki byggð á svæðinu eftir 2015 skulu hönnuð þannig að auðvelt sé að fjarlægja þau. Mörk núverandi deiliskipulagsmarka flugvallarins miða við að ný íbúðabyggð Nýja Skerjafjarðar rísi austan núverandi byggðar í Einarsnesi og ný strætisvagnaleið verði lögð í tengslum við íbúðabyggðina í Skerjafirði.

Aðalskipulag Reykjavíkur til 2040 gerir ráð fyrir að flugvallarstarfsemi í Vatnsmýri verði lögð af á skipulagstímabilinu. Mögulegt verði að reka flugstarfsemi á flugvellinum til ársins 2032. Aðstaða til þyrlulendinga vegna þjónustu Landhelgisgæslunnar verður þó áfram heimil á svæðinu, samkvæmt ákvörðun í deiliskipulagi.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert