Rafmagnið komið á í Sandgerði

Sandgerði í Suðurnesjabæ.
Sandgerði í Suðurnesjabæ. mbl.is/Reynir Sveinsson

Rafmagnslaust er í stórum hluta Sandgerðisbæjar að því er fram kemur í færslu HS Veitna á Facebook.

Fram kemur að búið sé að finna bilunina, en grafið var í háspennustreng og er nú unnið að því að koma rafmagninu aftur á.

Uppfært klukkan 11.15:

Allir viðskiptavinir eru komnir með rafmagn að nýju

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert