Eigendur ferðaþjónustunnar Aurora Igloo í Rangárþingi ytra hafa kynnt breytingar á uppbyggingaráformum sínum. Þeir sækjast eftir að fá leyfi til að reisa fjölda kúluhúsa fyrir ferðamenn en eins og kom fram í Morgunblaðinu í síðasta mánuði voru nokkur slík reist og tekin í notkun án þess að tilskilin leyfi væru fyrir hendi.
Um er að ræða jörðina Stekkatún 1 sem er við Þykkvabæjarveg, skammt frá Hellu. Hluti jarðarinnar er í dag skilgreindur sem verslunar- og þjónustusvæði í aðalskipulagi sveitarfélagsins. Þar voru reist 12 kúluhús sem leigð eru út undir nafninu Aurora Igloo. Í haust bættust svo fleiri hús við en þau eru reist á hluta jarðarinnar sem skilgreindur er sem landbúnaðarsvæði og því er um óleyfisframkvæmd að ræða.
Ekki náðist í eigendur Aurora Igloo í gær, ekki frekar en þegar greint var frá óleyfisframkvæmd þeirra í desember. Eftir athugasemdir sem bárust við kynningu á fyrstu áformum eigendanna hafa þeir ákveðið að minnka verslunar- og þjónustusvæði niður í 12,6 hektara í stað 44 hektara sem áður voru planaðir. Kúluhúsin verða allt að 27 talsins í stað 55 sem áður var stefnt að. Það er sami fjöldi og nágrannar segja að þegar hafi verið settur upp og tekinn var í notkun að hluta þar til sveitarfélagið greip inn og í sló á putta eigendanna.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag