Samþykkja stjórnsýsluúttekt við Álfabakka

Borgarstjóri segir mikilvægt að læra af þeim mistökum sem gerð …
Borgarstjóri segir mikilvægt að læra af þeim mistökum sem gerð hafa verið en brýnt að horfa til framtíðar. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Borg­ar­stjórn samþykkti í dag að fara í stjórn­sýslu­út­tekt á skipu­lags­ferli við Álfa­bakka 2a í Suður-Mjódd þar sem stærðar­inn­ar vöru­hús hef­ur risið, íbú­um til mik­ils ama.

Í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg seg­ir að innri end­ur­skoðun borg­ar­inn­ar verði falið að gera ít­ar­lega stjórn­sýslu­út­tekt á skipu­lags­ferl­inu.

Jafn­framt verði haf­in vinna við að end­ur­skoða fer­il skipu­lags­mála inn­an borg­ar­inn­ar.

„Til að tryggja frek­ari gæði“

Er haft eft­ir Ein­ari Þor­steins­syni borg­ar­stjóra að mik­il­vægt sé að læra af þeim mis­tök­um sem gerð hafa verið en sömu­leiðis brýnt að horfa til framtíðar og koma í veg fyr­ir að annað eins geti gerst aft­ur.

„Þess vegna vilj­um við skoða málið ofan í kjöl­inn, greina hvar má gera bet­ur í stjórn­sýsl­unni og end­ur­skoða fer­il skipu­lags­mála hjá borg­inni til að tryggja frek­ari gæði.“

Líta til er­lendra fyr­ir­mynda

Jafn­framt er lagt til að innri end­ur­skoðun fylgi út­tekt­inni eft­ir með virku eft­ir­liti, sem bygg­ir á niður­stöðum henn­ar.

Feng­in verður aðstoð sér­fræðinga utan borg­ar­inn­ar í arki­tekt­úr og borg­ar­hönn­un. Meðal verk­efna verður að tryggja í ferl­inu að fyr­ir hendi sé ör­ygg­is­ventill svo hægt sé að grípa inn í ef verk­efni stefna fyr­ir­sjá­an­lega í nei­kvæða átt eft­ir samþykkt skipu­lags.

Aðferðafræði sem geng­ur út á að hönn­un stærri verk­efna sé kom­in lengra í ferl­inu við deili­skipu­lags­gerð verður einnig tek­in til skoðunar svo ekki sé verið að samþykkja skipu­lags­heim­ild­ir sem ófyr­ir­sjá­an­legt er hvernig spil­ast úr. Skoðuð verða for­dæmi og fyr­ir­mynd­ir er­lend­is frá í þessu sam­hengi.

htt­ps://​www.mbl.is/​frett­ir/​inn­lent/​2024/​12/​31/​und­ir­bu­a_und­ir­skrift­ir/

Í út­tekt innri end­ur­skoðunar borg­ar­inn­ar verði meðal ann­ars tekið til­lit til:

  1. Ákvarðana­töku­ferl­is­ins í mál­inu.
  2. Tíma­línu máls­ins, frá upp­hafi til loka.
  3. Reglu­verks­ins og fram­kvæmd þess, með áherslu á hvort farið hafi verið eft­ir gild­andi lög­um og regl­um.
  4. Eft­ir­lits­ferla, með sér­stakri áherslu á hvernig staðið var að eft­ir­liti við bygg­ingu skemm­unn­ar.
  5. At­huga­semda íbúa og hvernig unnið var úr þeim at­huga­semd­um.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert