Dagur gerði ráð fyrir að verða þingflokksformaður

Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar.
Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Árni Sæberg

Guðmundur Ari Sigurjónsson var kjörinn þingflokksformaður Samfylkingarinnar á fyrsta þingflokksfundi flokksins í gær. Guðmundur hefur verið formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar frá landsfundi haustið 2022.

Arna Lára Jónsdóttir var kjörin varaformaður stjórnar þingflokks og Kristján Þórður Snæbjarnarson kjörinn ritari. Fram kom í tilkynningu flokksins að kosningin hefði verið samhljóða og samkvæmt tillögu formanns flokksins, Kristrúnar Frostadóttur.

Athygli hefur vakið að Dagur B. Eggertsson, þingmaður flokksins og fyrrverandi borgarstjóri, hafi ekki hlotið kjör í ábyrgðarstöðu þingflokksins eins og margir bjuggust við.

„Ég var alveg tilbúinn til þess að takast á við það verkefni að verða þingflokksformaður, ekki spurning um það, og gerði alveg ráð fyrir því. Þannig að ég fer til annarra verkefna,“ segir Dagur í samtali við Morgunblaðið.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert