Einn fluttur á sjúkrahús þegar eldur kviknaði í hjólhýsi

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu.
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu. Morgunblaðið/Eggert

Einn var fluttur á sjúkrahús vegna gruns um reykeitrun eftir að eldur kom upp í hjólhýsi við Sævarhöfða í Reykjavík á fimmta tímanum í nótt.

Varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins segir við mbl.is að tvö hjólhýsi hafi brunnið og tvö önnur hafi skemmst vegna hita en ekki sé vitað um eldsupptök. Á þessu svæði við Sævarhöfða er hjólhýsabyggð.

Rétt fyrir klukkan sex í morgun barst slökkviliðinu tilkynning um reyk í einbýlishúsi á Álftanesi en þar hafði myndast hiti og reykur í poka sem í voru geymdar notaðar rafhlöður. 

Reykskynjari vakti húsráðendur sem kölluðu til slökkvilið. Tveir dælubílar fóru á staðinn en segja má að reykskynjarinn hafi komið í veg fyrir mikið tjón.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert