„Ég er valdameiri en Snorri Másson“

Jakob Birgisson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra fullyrðir að hann sé valdameiri en Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins. Ekki hafi þurft prófkjör eða þingframboð til.

Þetta kemur fram í viðtali við Jakob á vettvangi Spursmála á mbl.is.

Hvort sem er í stjórn eða stjórnarandstöðu

Þar er Jakob spurður út í það hvort færa megi rök fyrir því að aðstoðarmaður ráðherra, sem standi í miðri hringiðu stjórnmálanna og stjórnkerfisins, sé ekki áhrifameiri en óbreyttur þingmaður, hvort sem er í stjórn eða stjórnarandstöðu.

Er samanburður dreginn við góðan vin Jakobs, Snorra fyrrnefndan Másson.

Það stendur ekki á svari hjá Jakobi, sem ekki er aðeins aðstoðarmaður ráðherra heldur einnig í hópi vinsælustu uppistandara landsins.

„Já, já. Ég er valdameiri en Snorri Másson. Er það ekki það sem þú vilt að ég segi?“

Og Jakob slær á létta strengi þegar hann er spurður út í hvaða mál hann hyggist leggja áherslu á meðan veru hans í ráðuneytinu stendur:

„Það eru útlendingamálin.“

Viðtalið við Jakob má sjá og heyra í heild sinni í spilaranum hér að neðan. Ásamt honum mætir þar til leiks Marta María Winkel Jónasdóttir.

Snorri Másson og Jakob Birgisson eru góðir vinir, þótt þeir …
Snorri Másson og Jakob Birgisson eru góðir vinir, þótt þeir séu mis valdamiklir. mbl.is/Samsett mynd
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert