Skoða mögulegar verkfallsaðgerðir

Kjaraviðræður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna við ríki og sveitarfélög hafa …
Kjaraviðræður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna við ríki og sveitarfélög hafa gengið treglega að undanförnu. Morgunblaðið/Kristinn

Lítið hefur miðað í kjaraviðræðum Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) við sveitarfélögin og við ríkið.

LSS vísaði viðræðum við Samband íslenskra sveitarfélaga til ríkissáttasemjara í byrjun nóvember sl. Félagið hefur sett saman hóp sem er að skoða mögulegar verkfallsaðgerðir og annast undirbúning að aðgerðum til að knýja á um að samningsréttur LSS verði virtur og komið verði til móts við kröfur félagsins. Engar ákvarðanir hafa þó enn verið teknar að sögn Bjarna Ingimarssonar formanns LSS.

Félagið ákvað svo eftir árangurslausan fund með samninganefnd ríkisins síðastliðinn mánudag að vísa kjaradeilu við ríkið einnig til ríkissáttasemjara. Kjarasamningur sem félagið gerði við ríkið í haust var felldur af félagsmönnum í atkvæðagreiðslu í október með 55,77% atkvæða gegn 42,31%.

Kjaraviðræður við sveitarfélögin hafa staðið með hléum í 14 mánuði og gengið treglega. Bjarni segir í samtali við Morgunblaðið að seinast hafi verið fundað með sveitarfélögunum 19. desember sl. „Við ákváðum þá að taka okkur jólafrí en það hefur ekki verið boðaður fundur á nýju ári og eingöngu átt sér stað óformlegt spjall,“ segir hann.

Í umfjöllun um stöðuna í viðræðunum við sveitarfélögin á vef LSS 20. desember segir að ljóst hafi orðið á seinasta sáttafundi að viðræður síðustu mánaða skiluðu engu og að LSS teldi að ekki væri grundvöllur til að halda samtalinu áfram nema samninganefnd sveitarfélaganna kæmi með eitthvað að borðinu til að nálgast kröfur LSS.

Fljótlega eftir áramót verður kjararáð LSS boðað til fundar og félagsfundur haldinn í framhaldi af því til að fara yfir stöðuna og framhaldið.

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn eru ein af öryggisstéttum samfélagsins og búa því við takmarkaðan verkfallsrétt. Ber þeim að halda uppi ákveðinni lágmarksþjónustu ef félagsmenn samþykkja að fara í verkfallsaðgerðir. Bjarni segir félagsmenn hafa verkfallsrétt upp að ákveðnu marki ef farið er í aðgerðir. 

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert