Dagur verði aldrei aukaleikari í pólitík

Oddný Harðardóttir og Dagur B. Eggertsson.
Oddný Harðardóttir og Dagur B. Eggertsson. Samsett mynd/mbl.is/Arnþór/Eggert

Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri, verður aldrei aukaleikari í pólitík, að mati Oddnýjar Harðardóttur, fyrrverandi formanns flokksins.

„Ég hef fréttir að færa! Dagur B. Eggertsson verður aldrei aukaleikari á hinu pólitíska sviði. Reynsla hans, þekking og hæfni í stjórnmálum er meiri en svo,“ segir Oddný í færslu á Facebook.

Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, kallaði Dag aukaleikara í skilaboðum til kjósanda fyrir alþingiskosningarnar síðustu. Virðist hún þannig ósammála formanninum fyrrverandi.

Sagði Kristrún einnig að Dagur myndi ekki verða ráðherra ef flokkurinn myndi fara í ríkisstjórn.

Gerði ráð fyrir að verða þingflokksformaður

Guðmund­ur Ari Sig­ur­jóns­son var kjör­inn þing­flokks­formaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar á þing­flokks­fundi flokks­ins á þriðjudaginn.

„Ég var al­veg til­bú­inn til þess að tak­ast á við það verk­efni að verða þing­flokks­formaður, ekki spurn­ing um það, og gerði al­veg ráð fyr­ir því. Þannig að ég fer til annarra verk­efna,“ sagði Dag­ur í sam­tali við Morg­un­blaðið í vikunni.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert