Styður Sigurð Inga heilshugar

Ingibjörg Isaksen er oddviti Framsóknar í Norðausturkjördæmi.
Ingibjörg Isaksen er oddviti Framsóknar í Norðausturkjördæmi. Ljósmynd/Aðsend

Ingi­björg Isak­sen þingmaður Fram­sókn­ar­flokks­ins styður Sig­urð Inga Jó­hanns­son til áfram­hald­andi for­mennsku í flokkn­um. Hún seg­ir hann ein­an ekki bera ábyrgð á niður­stöðum kosn­ing­anna

Lilja Al­freðsdótt­ir, vara­formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði í Dag­mál­um kurr í flokks­mönn­um eft­ir rýr kosn­inga­úr­slit. Hún játaði að brott­hvarf Bjarna Bene­dikts­son­ar úr stjórn­mál­um hafi aukið þrýst­ing á Sig­urð Inga og sagði kallað eft­ir því að flokksþingi yrði flýtt. 

Sig­urður Ingi hef­ur sagt að hann vilji leiða flokk­inn áfram.

Funda í mánuðinum

Lands­stjórn Fram­sókn­ar mun funda í lok mánaðar. Í kjöl­farið mun lands­stjórn boða miðstjórn sam­an. Miðstjórn fer með umboð flokks­ins á milli flokksþinga og get­ur tekið ákvörðun um að flýta flokksþingi. Á heimasíðu Fram­sókn­ar seg­ir að um 200 manns sitji í miðstjórn. 

Kjör­dæm­is­ráð fram­sókn­ar­manna í Reykja­vík­ur­kjör­dæmun­um samþykkti á fimmtu­dag að óska miðstjórn­ar­fund­ar svo flýta megi flokksþing. Sam­kvæmt heim­ild­um mbl.is átti miðstjórn að funda í nóv­em­ber en fundi var frestað vegna kosn­ing­anna og var því á áætl­un að boða fund á nýju ári. Að öllu jafna fund­ar miðstjórn tvisvar á ári.

Flokksþing Fram­sókn­ar var haldið í apríl í fyrra. Al­mennt er það haldið annað hvert ár. Flokksþing hef­ur æðsta vald í mál­efn­um Fram­sókn­ar­flokks­ins. Þar er æðsta stjórn flokks­ins kos­in þ.e. formaður, vara­formaður og rit­ari.

„Við sjá­um á eft­ir góðu fólki“

Ingi­björg á sæti í bæði lands­stjórn og miðstjórn. Hún seg­ir mik­il­vægt fyr­ir fólkið í flokkn­um að hitt­ast og ræða stöðuna og skref­in fram á við. Spurð hvort hún telji rétt að flýta flokksþingi seg­ir Ingi­björg: 

„Það fer eft­ir umræðu flokks­manna á miðstjórn­ar­fundi. Hvaða tíma­punkt­ur er rétt­ur fyr­ir það skal ég ekki segja.“

Ingi­björg tel­ur ekki að Sig­urður Ingi þurfi að axla ábyrgð á kosn­inga­ó­sigr­in­um. Hún styður hann heils­hug­ar til áfram­hald­andi for­mennsku og tel­ur rétt að gefa hon­um tíma til að ræða stöðuna við flokks­menn. 

„Formaður­inn tek­ur þá ákvörðun í þess­ari kosn­inga­bar­áttu að setja sig í annað sætið með það að mark­miði að koma tveim­ur inn í sínu kjör­dæmi því við viss­um að það væri á bratt­an að sækja. Hann komst inn með ann­an mann. Það er vissu­lega áhyggju­efni að við kom­um ekki inn þing­manni í Reykja­vík­ur­kjör­dæmun­um og Suðvest­ur. Við sjá­um á eft­ir góðu fólki. Ég held að það séu marg­ir þætt­ir sem koma þarna inn, ekki ein­hver einn. Ég styð for­mann­inn okk­ar heils­hug­ar,“ seg­ir Ingi­björg og bæt­ir við:

Hann er einn reynslu­mesti ein­stak­ling­ur­inn á þing­inu í dag. Hann hef­ur verið mjög skýr með það að hann vilji halda áfram og hann ætl­ar að fara nú og hitta fólk í flokkn­um og tala við það. Mér finnst rétt að gefa hon­um þann tíma og styðja hann í því.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert