Áslaug tilkynnir ákvörðun sína fljótlega

Áslaug Arna kveðst hafa rætt við fjölda flokksmanna síðustu daga …
Áslaug Arna kveðst hafa rætt við fjölda flokksmanna síðustu daga til að ræða komandi landsfund í lok febrúar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mun á næstunni tilkynna ákvörðun sína um hvort að hún bjóði sig fram til að leiða Sjálfstæðisflokkinn.

Þetta segir hún í samtali við mbl.is. 

„Ég hef ávallt lagt mikla áherslu á samtal við flokksmenn og mun taka ákvörðun fljótlega, en mun upplýsa um hana þegar hún liggur fyrir,“ segir Áslaug spurð um það hvort að hún muni bjóða sig fram til forystu á landsfundi flokksins. 

Áhersluatriði að sameina flokkinn

Miðstjórn Sjálf­stæðis­flokks­ins ákvað á fundi sín­um í há­deg­inu að breyta ekki dag­setn­ingu lands­fund­ar flokks­ins. Fer hann því fram dag­ana 28. fe­brú­ar til 2. mars.

Áslaug hefur verið orðuð við formannsframboð á komandi landsfundi og sjálf hefur hún sagt að kominn sé tími á kynslóðaskipti í flokknum. 

„Ég hef átt í samtölum við fjölda flokksmanna síðustu daga til að ræða komandi landsfund Sjálfstæðisflokksins. Það er ljóst að nú þarf að leggja áherslu á að sameina flokkinn og skapa sterkt bakland fyrir þær áskoranir sem fram undan eru,“ segir Áslaug. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert