Einstaka tilfelli í haust en nú fjöldadauði

Þessi gæs fannst dauð ásamt átján öðrum í Vatnsmýrinni á …
Þessi gæs fannst dauð ásamt átján öðrum í Vatnsmýrinni á sunnudag. Ljós­mynd/​Gunn­ar Þór Hall­gríms­son

Skæð fuglain­flú­ensa H5N5 herj­ar nú á fugla, einkum gæs­ir, í Reykja­vík og fjölg­un smita og dauðsfalla er áhyggju­efni. Með sumr­inu gæti smit­um fækkað en þar sem far­fugl­ar gætu komið með ný af­brigði og fuglain­flú­ens­an gæti stökk­breyst þá er óljóst hvernig far­ald­ur­inn mun þró­ast. 

„Það er áhyggju­efni að það sé mik­il og skyndi­leg fjölg­un á dauðum fugl­um,“ seg­ir Þóra Jó­hanna Jón­as­dótt­ir, yf­ir­dýra­lækn­ir hjá MAST, um stöðuna á fuglain­flú­ens­unni.

Hún seg­ir mik­il­vægt að fugla­eig­end­ur, veri það ali­fugla­bænd­ur eða fólk með hæn­ur í bak­g­arðinum, séu meðvitaðir um smit­hættu og geri allt til að hindra sam­gang villtra fugla og ali­fugla.

HFN5 aðeins greinst í heim­il­is­dýri á Íslandi

Tveir kett­ir hafa greinst með fuglain­flú­ens­una H5N5 og þar af drapst einn fyr­ir jól vegna veirunn­ar.

Þóra seg­ir það vera áhyggju­efni að veir­an grein­ist í heim­il­is­dýr­um, en Ísland er eina landið sem hef­ur til­kynnt grein­ingu af­brigðis­ins H5N5 í heim­il­is­dýri til Alþjóðadýra­heil­brigðis­stofn­un­ar­inn­ar (WOAH). 

Gunn­ar Þór Hall­gríms­son, pró­fess­or í dýra­fræði, fann svo 19 dauðar grá­gæs­ir í Vatns­mýri í Reykja­vík á sunnu­dag, eins og mbl.is greindi frá.

Þóra seg­ir aðspurð að MAST gangi út frá því að fuglain­flú­ens­an H5N5 hafi dregið þær til dauða.

Ekki tekið sýni úr öll­um dauðum fugl­um

Mik­ill fjöldi til­kynn­inga hef­ur borist MAST að und­an­förnu og tek­ur tíma að upp­færa upp­lýs­ing­ar á heimasíðu MAST um smit sem hafa greinst.

Þóra seg­ir að ekki sé til ná­kvæm­ar upp­lýs­ing­ar um fjölda fugla sem hafa dáið úr fuglain­flú­ensu af ýms­um ástæðum.

„Við erum ekki að taka sýni úr öll­um dauðum fugl­um. Þegar við erum búin að greina smit í ákveðinni teg­und á þekkt­um stað og við vit­um að fuglain­flú­ens­an er þar, þá höld­um við ekki áfram að taka sýni úr hverj­um ein­asta fugli. Þannig taln­ing já­kvæðra fugla end­ur­spegl­ar ekki fjölda fugla sem veikj­ast og drep­ast,“ seg­ir Þóra.

Þóra Jóhanna Jónasdóttir, yfirdýralæknir hjá Mast.
Þóra Jó­hanna Jón­as­dótt­ir, yf­ir­dýra­lækn­ir hjá Mast. Ljós­mynd/​Aðsend

Aukn­ing bend­ir til breyt­inga

Fuglain­flú­ensa barst til lands­ins árið 2021 og síðan þá hafa verið dæmi um fugla­dauða á land­inu. Mikið af súlu drapst til dæm­is í Eld­ey árið 2022 og einnig voru marg­ir máv­ar sem dráp­ust það ár.

Árið 2023 bár­ust til­kynn­ing­ar um hóp­dauða m.a í lund­um, en ekki greind­ist fuglain­flú­ensa í þeim, en bara ein­staka sýni greind­ust já­kvæð það árið.

Mögu­leg ástæða þess að fólk tek­ur meira eft­ir fuglaflens­unni nú get­ur líka verið að smit er nú að grein­ast í álft­um og grá­gæs­um sem halda sig nær mann­fólki.

„Það hef­ur ekki verið áber­andi far­ald­ur af þessu af­brigði H5N5 en þessi aukn­ing núna get­ur bent til þess að það séu ein­hverj­ar breyt­ing­ar,“ seg­ir Þóra Jó­hanna.

„Í haust virt­ust bara vera ein­staka til­felli og ekki mik­ill fjölda­dauði fyrr en þá núna,“ seg­ir hún.

Fjölg­un smita í villt­um fugl­um

Hún seg­ir að það sé grein­ar­mun­ur á því hvort að smit komi upp í ali­fugla­bú­um eða hjá villt­um fugl­um.

Smit í ali­fugla­bú­um með skæðri fuglain­flú­ensu valdi alltaf mikl­um dauða og af­lífa þurfi fugla í þeim hús­um sem smit koma upp af dýra­vel­ferðarsjón­ar­miðum og vegna sótt­varna, en nú sjá­ist fjölg­un smita og dauðsfalla hjá villt­um fugl­um í vax­andi mæli.

Smit­um fækki í sum­ar en samt ófyr­ir­sjá­an­legt

Veir­an lif­ir bet­ur af í kulda þannig Þóra ger­ir ráð fyr­ir því að smit­um muni fækka í sum­ar þegar það fer að hlýna, nema far­fugl­ar beri með sér ný af­brigði. En svo get­ur veir­an stökk­breyst og því sé þró­un­in í raun ófyr­ir­sjá­an­leg.

„Við sjá­um núna breyt­ing­ar að það er að aukast fjöldi dauðra fugla, við sjá­um að það eru til­felli sem smita yfir í heim­il­is­dýr. En við vit­um ekki ná­kvæm­lega hvað mun ger­ast á næstu mánuðum,“ seg­ir Þóra.

Mik­il­vægt að til­kynna til yf­ir­valda

Hún seg­ir mik­il­vægt að fólk til­kynni til Mat­væla­stofn­un­ar um veika og dauða fugla sem gætu hafa drep­ist vegna fuglain­flú­ensu. Stofn­un­in reiðir sig á til­kynn­ing­ar frá al­menn­ing og sveit­ar­fé­lög­um til að vakta þró­un­ina og smitálagið.

Hins veg­ar þegar fólk sér sjá­an­lega veika fugla þá er það af dýra­vel­ferðarsjón­ar­miðum mik­il­vægt að fólk til­kynni slíkt án taf­ar til viðkom­andi sveit­ar­fé­lags, sem hef­ur sam­kvæmt lög­um um vel­ferð dýra skyldu til að bregðast við ef villt dýr eru í neyð og koma því til hjálp­ar eða lina þján­ing­ar þess.

Utan þjón­ustu­tíma sveit­ar­fé­laga er hægt að hafa sam­band við lög­reglu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert