Fimm skjálftar af stærri gerðinni ofan við Mýrar

Horft yfir Mýrar. Skjálftavirknin mælist í fjöllunum norðaustur af landshlutanum.
Horft yfir Mýrar. Skjálftavirknin mælist í fjöllunum norðaustur af landshlutanum. mbl.is/RAX

Fjórir skjálftar riðu yfir nærri Grjótárvatni í fjöllunum ofan við Mýrar í Borgarfirði frá um klukkan tíu í morgun og fram undir hádegi.

Voru þeir á bilinu 2,3 til 2,7 að stærð, samkvæmt mælingum Veðurstofu, og skipa sér því í flokk með þeim stærstu sem orðið hafa á svæðinu.

Fimmti skjálftinn bættist við kl. 13.45 og var af stærðinni 2,5.

Bera fór skyndilega á skjálftum í fjöllunum árið 2021 og þykir virknin nú benda til kvikuhreyfinga á miklu dýpi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert