Gagnrýnir arftaka sinn í ráðuneytinu

Guðlaugur Þór Þórðarson.
Guðlaugur Þór Þórðarson. mbl.is/Árni Sæberg

„Það er áhyggjuefni að ráðherrann segist ekki ætla að leggja tilbúna ramma fyrir þingið heldur einungis einn á hverju þingi. Af hverju leggur hann ekki fram þá vinnu sem nú þegar er tilbúin fyrir þingið?“

Þetta ritar Guðlaugur Þór Þórðarson, fv. umhverfis- og orkumálaráðherra, í aðsendri grein í blaðinu í dag og gagnrýnir arftaka sinn í ráðuneytinu, Jóhann Pál Jóhannsson. 

„Ráðherrann kvartar undan því að rammaáætlun hafi loks verið samþykkt á síðasta kjörtímabili eftir níu ár. Já, það var fyrst eftir að Sjálfstæðisflokkurinn tók við ábyrgð á rammaáætlun sem hún var samþykkt á Alþingi, ásamt einföldunarfrumvarpi sem gerir það að verkum að nú er hægt að stækka virkjanir án þess að fara í gegnum rammaferlið,“ segir Guðlaugur meðal annars í grein sinni.

Lesa má aðsenda grein Guðlaugs Þórs í heild sinni í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert