Mjög vel fylgst með hérlendis og erlendis

Alma Möller heilbrigðisráðherra á leið á ríkisstjórnarfund í morgun.
Alma Möller heilbrigðisráðherra á leið á ríkisstjórnarfund í morgun. mbl.is/Árni Sæberg

Alma Möller heil­brigðisráðherra seg­ir Mat­væla­stofn­un og sótt­varna­lækni fylgj­ast vel með fuglaflens­unni sem herj­ar nú á fugla, einkum gæs­ir, en hef­ur einnig greinst í tveim­ur kött­um. Hún seg­ir að það væri ástæða til að hafa áhyggj­ur ef fuglaflens­an myndi breiðast út á meðal manna en þá væri um annað af­brigði að ræða.

mbl.is ræddi við Ölmu að lokn­um rík­is­stjórn­ar­fundi í morg­un.

Já og nei

Hef­ur þú ein­hverj­ar áhyggj­ur af því að þessi flensa fari að dreifast á milli manna?

„Ég verð að fá að svara því já og nei. Af því að þetta er af­brigðið H5N5 sem hef­ur ekki greinst í fólki. Síðan hef­ur verið af­brigði vest­an­hafs sem er H5N1 og það hef­ur greinst í fólki,“ seg­ir heil­brigðisráðherr­ann og held­ur áfram:

„En auðvitað er alltaf ástæða til þess að fylgj­ast vel með og það ger­ir Mat­væla­stofn­un og auðvitað sótt­varn­ar­lækn­ir líka.“

Þá und­ir­strik­ar hún þau ráð sem hafa komið frá stofn­un­un­um um að fólk eigi að nálg­ast sjúk dýr af mik­illi varúð og gæta sótt­varna.

Dróg­um marg­vís­leg­an lær­dóm af kór­ónu­veirufar­aldr­in­um

Ef svo til kæmi að fuglaflens­an myndi fara að dreifast á milli manna, vær­um við viðbúin því?

„Þú ert að tala um ef að það kæmi upp nýr far­ald­ur?“

Í raun­inni, já.

„Það eru auðvitað til viðbragðsáætlan­ir sem að reyndu ræki­lega á í heims­far­aldri kór­ónu­veiru. Við dróg­um marg­vís­leg­an lær­dóm af þeim far­aldri þannig við vær­um vel, eða jafn­vel bet­ur und­ir­bú­in en við vor­um þá. En ég end­ur­tek að þetta af­brigði sem að geis­ar núna í fugl­um – það hef­ur ekki borist í fólk.“

Mun ekki hafa áhyggj­ur fyr­ir fram

Hún seg­ir þó að ef af­brigðið H5N1 færi að dreifast á milli manna væri ástæða til þess að hafa áhyggj­ur en tek­ur hún fram að hún sé ekki að hafa áhyggj­ur af því fyr­ir fram.

„Maður tek­ur bara þessu eins og það kem­ur og það er auðvitað „mjög vel fylgst með, bæði hér­lend­is og er­lend­is.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert