Búið er að gefa út ákæru á hendur manni sem er grunaður um að hafa banað móður sinni á sjötugsaldri í Breiðholti á síðasta ári.
Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari hjá embætti héraðssaksóknara, í samtali við mbl.is.
Gæsluvarðhald yfir manninum rann út í dag en á morgun hefði hann hafa setið í gæsluvarðhaldi í 12 vikur, en enginn getur setið lengur í gæsluvarðhaldi en 12 vikur ef ekki er gefin út ákæra. Það eru þó gerðar undantekningar á því ef brýnir rannsóknarhagsmunir eru til staðar.
Fór ákæruvaldið fram á áframhaldandi varðhald og var það staðfest.
Lögreglan fékk tilkynningu um málið á miðnætti 23. október. Þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti voru strax hafnar endurlífgunartilraunir en þær báru ekki árangur og var konan úrskurðuð látin.
Sonur hennar var handtekinn í kjölfarið en hann var þá nýsloppinn úr fangelsi eftir að hafa afplánað dóm fyrir ofbeldi gegn móður sinni. Þá var hann ákærður árið 2006 fyrir tilraun til manndráps eftir að hafa stungið föður sinn í bakið.