Aðalmeðferð í Neskaupstaðamáli í febrúar

Frá lögregluaðgerðum í Neskaupstað í sumar.
Frá lögregluaðgerðum í Neskaupstað í sumar. Ljósmynd/Aðsend

Fyr­ir­hugað er að aðalmeðferð í Nes­kaupstaðamál­inu svo­kallaða, þar sem karl­maður á fimm­tugs­aldri er ákærður fyr­ir að myrða hjón á átt­ræðis­aldri með hamri, fari fram 10. og 11. fe­brú­ar og mögu­lega 12. fe­brú­ar ef þörf er á. Þetta kom fram í fyr­ir­töku máls­ins í Héraðsdómi Aust­ur­lands í dag.

Líkt og mbl.is fjallaði um þegar málið var þing­fest í síðustu viku var til skoðunar að hafa fjöl­skipaðan dóm, þ.e. að dóm­ari myndi hafa meðdóm­ara með sér í mál­inu. Var dóm­ar­inn þá ekki bú­inn að skipa meðdóm­ara.

Tveir meðdóm­ar­ar

Arnþrúður Þór­ar­ins­dótt­ir, sak­sókn­ari máls­ins, staðfesti við mbl.is að búið væri að ákveða meðdóm­ara. Auk Hákons Þor­steins­son­ar, héraðsdóm­ara við Héraðsdóm Aust­ur­lands, verða það þau Barbara Björns­dótt­ir, héraðsdóm­ari við Héraðsdóm Reykja­vík­ur, og Tóm­as Zoëga geðlækn­ir.

Jafn­framt staðfesti Arnþrúður að grein­ar­gerð verj­anda hefði verið skilað og að eng­in ákvörðun hefði verið tek­in um hvort málið yrði að hluta til lokað, en slíkt kom til umræðu við þing­fest­ingu, þó að hvorki sak­sókn­ari né verj­andi hafi farið fram á það.

Í varðhaldi eða vist­un frá því í ág­úst

Maður­inn hef­ur sætt gæslu­v­arðhaldi og vist­un síðan í ág­úst þegar hann var hand­tek­inn. Er hann grunaður um að hafa valdið dauða hjón­anna sem fund­ust lát­in á heim­ili sínu í Nes­kaupstað í ág­úst. Hann neit­ar sök. Var krafa um vist­un á viðeig­andi stofn­un síðasta staðfest af dóm­ara til 14. mars.

Í ákær­unni seg­ir að maður­inn hafi veist að hjón­um inn­an­dyra með hamri og hafi slegið þau bæði oft með hamr­in­um, einkum í höfuð, allt með þeim af­leiðing­um að þau hlutu bæði um­fangs­mikla og al­var­lega áverka á höfði, þar á meðal ít­rekuð brot á höfuðkúp­um, áverka á heila og smærri áverka á öðrum hlut­um lík­ama, en hjón­in lét­ust bæði af völd­um áverka á höfði.

Viður­kenn­ir að hafa verið á heim­ili hjón­anna en neit­ar sök

Að sögn vitna sást maður­inn við hús hjón­anna að kvöldi 21. ág­úst og segj­ast vitni skömmu síðar hafa heyrt „þung bank-högg“ úr íbúðinni. Sjúkra­flutn­inga­menn komu fyrst­ir á vett­vang og greindu lög­regl­unni frá því að fólkið væri greini­lega látið. 

Í gögn­um máls­ins kem­ur fram að maður­inn hafi viður­kennt við yf­ir­heyrsl­ur að hafa verið á heim­ili hjón­anna í Nes­kaupstað en neitaði að hafa verið vald­ur að dauða þeirra. Þau hafi þegar verið lát­in. Útskýr­ing­ar hans á því hvers vegna hann hafi ekki til­kynnt um slasað eða látið fólk þóttu ekki trú­verðugar.

Maður­inn er auk mann­dráps ákærður fyr­ir vopna­laga­brot og játaði hann sök í þeim hluta ákær­unn­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert