Grét sig í svefn í 15 ár

Páll Andrésson á fundi Aðdáendaklúbbs Loftleiða í liðinni viku.
Páll Andrésson á fundi Aðdáendaklúbbs Loftleiða í liðinni viku.

Páll Andrés Andrésson hefur verið á fullu í félagsmálum í yfir 50 ár og ekki sér fyrir endann á því nema síður sé. Hann ræktar sköpunarhæfileikana með hópi manna þrisvar í viku og heldur utan um mánaðarlega kaffifundi Aðdáendaklúbbs Loftleiða auk annarra félagsstarfa.

Þrjá morgna í viku er Páll, sem er 85 ára, í smíðastofu í frístunda- og félagsstarfi fullorðinna í Árskógum 4 í Breiðholti. „Ég hef dundað mér hérna við að saga út Íslandskort og kort af Lúxemborg, tálga fugla og fleira í nokkur ár,“ segir hann, en þegar mest er mæta 16 manns. „Hér eru listamenn á heimsmælikvarða, menn sem ætti að stoppa upp, því þeir eru svo flottir.“

Páll sagar út og tálgar af mikilli list og sker …
Páll sagar út og tálgar af mikilli list og sker nú út uglu. mbl.is/Árni Sæberg

Gott líf í Lúx

Páll lærði að fljúga en segir að engin störf hafi síðan verið að fá í fluginu. „Ég hafði ekki efni á því að sitja úti á flugvelli í tíu til tólf ár og bíða eftir vinnu og því fór ég til Miami á Flórída og lærði þar flugumsjón.“ Að því loknu buðu Loftleiðir honum starf í Lúxemborg í tvo mánuði. „Við fluttum út vorið 1971 og mánuðirnir urðu að tólf árum, en þá var starfsemi Flugleiða þar lögð niður og við fluttum aftur til Íslands. Sem gamall Loftleiðastarfsmaður fékk ég ekki vinnu og þá fór ég bara að kenna á bíl og var ökukennari það sem eftir var starfsævinnar.“

Fjölskyldunni leið sérlega vel í Lúxemborg og erfitt var að flytja þaðan. „Ég grét mig í svefn á hverju kvöldi í að minnsta kosti 15 ár eftir að við fluttum. Lúxemborg er besta land í heimi og það er rosalega gott að búa þar,“ staðhæfir Páll. Segir reyndar að sumarhitinn sé hærri nú en áður og flestir íslenskir vinir sínir sem búi þar komi nú yfirleitt til Íslands á sumrin. „Hitinn fór einu sinni yfir 30 stig þegar við bjuggum þarna og það var helvíti erfitt, en nú gerist þetta á hverju sumri.“

Gunnar Björgvinsson stóð fyrir stofnun Íslendingafélagsins í Lúxemborg og ekki leið á löngu þar til Páll lét þar til sín taka. 

Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu sem kom út fimmtudaginn 16. janúar. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert