Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra mætti á fund lögregluráðs í gær þar sem hún tilkynnti lögreglustjórum áform sín um að fjölga lögreglumönnum um fimmtíu þegar á þessu ári.
Ráðherra sagði við þetta tækifæri að fáliðuð lögregla ógni ekki aðeins öryggi lögreglumanna, heldur einnig öryggi fólksins í landinu. Ráðherra tjáði þá skoðun sína að fólk eigi að geta lifað sínu daglega lífi án þess að öryggi þess og öryggistilfinningu sé ógnað. Sömuleiðis þyrfti að efla öryggiskennd lögreglumanna. Dómsmálaráðherra sagði að þrátt fyrir hagræðingaráform ríkisstjórnarinnar sé einhugur um að tryggja þurfi öryggi í landinu, að því er segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
Dómsmálaráðherra sagði við þetta tækifæri að forgangsröðun og sýn dómsmálaráðuneytisins væru skýr.
„Verkefnið er að efla löggæslu í landinu. Dómsmálaráðuneytið er ráðuneyti almannaöryggis, sem snýst um öryggi fólksins í landinu í sínu daglega lífi. Það er frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks. Í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar er sérstaklega vikið að skipulagðri brotastarfsemi, netbrotum og mansali og á þeim þáttum þarf að taka. Lögreglan þarf að geta tekist á við skipulagða brotastarfsemi af meiri þunga, en hún hefur því miður fest rætur á Íslandi. Með fjölgun í stéttinni verður hægt að leggja enn meiri áherslu á rannsóknir á henni,“ er haft eftir ráðherra.
Þá kom hún einnig inn á hagræðingaráform ríkisstjórnarinnar og sagði hagræðingu mikilvæga en hún mætti ekki bitna á öryggi fólks. Lögreglan gæti þó litið til ýmissa þátta, til dæmis með því að samræma innkaupastefnu sína betur þvert á umdæmin, jafnvel með aukinni samvinnu við Norðurlöndin.
Þorbjörg Sigríður nefndi að heildarfjöldi starfandi lögreglumanna hefði ekki haldist í hendur við fólksfjölgun í landinu og stórfellda aukningu á komum ferðamanna. Vopnaburður meðal almennings hafi aukist, vopnatilkynningum til lögreglu hefur fjölgað verulega og lögreglumenn lendi oftar í hættulegum aðstæðum en áður, að því er fram kemur í tilkynningunni.
„Árið 2024 voru alls 795 lögreglumenn við störf á Íslandi, að frátöldum nemum og héraðslögreglumönnum. Brottfall innan lögreglu er umtalsvert og hefur aukist á undanförnum árum. Dómsmálaráðherra nefndi að greina þyrfti ástæður þessarar þróunar og leita leiða til að snúa henni við. Markmiðið sé meðal annars að fá aftur til starfa menntaða lögreglumenn sem horfið hafa frá starfi, sem verði síðan nánar útfært í hverju embætti fyrir sig. Jafnframt sagði ráðherra að teknir yrðu inn fleiri nýnemar í lögreglunám í haust og unnið væri að því að fjölga nemendum enn frekar út kjörtímabilið,“ segir jafnframt.