Óvissustigi aflýst vegna Bárðarbungu

Báðarbunga er í norðvesturhluta Vatnajökuls, en eldstöðvakerfið sem kennt er …
Báðarbunga er í norðvesturhluta Vatnajökuls, en eldstöðvakerfið sem kennt er við hana er 190 km langt.

Ríkislögreglustjóri í samráði við Lögreglustjórana á Norðurlandi eystra, Austurlandi og Suðurlandi aflýsir óvissustigi Almannavarna sem sett var á á þriðjudag vegna aukinnar skjálftavirkni í Bárðarbungu.

Mikil skjálftavirkni varð undir Bárðarbungu á þriðjudaginn og mældust tugir skjálfta, sá stærsti 5,1 að stærð.

Í tilkynningu ríkislögreglustjóra er vísað til þess að lítil skjálftavirkni hafi mælst í Bárðarbungu síðan á þriðjudagsmorgun. Sú skjálftahrina var sú kröftugasta sem mælst hefur síðan að síðustu eldsumbrot urðu í Bárðarbungu frá 2014 til 2015 og eldgos varð í Holuhrauni. Hreyfingar í jarðskjálftunum samræmast aukinni þenslu vegna kvikusöfnunar sem hefur staðið yfir frá síðustu eldsumbrotum 2015.

Nokkur óvissa er um hver þróun þessarar virkni verður á næstunni og ekki er útilokað að jarðskjálftavirkni á svæðinu taki sig aftur upp. Segir í tilkynningunni að áfram verði fylgst vel með.

Líkt og fjallað hefur verið um í vikunni er Bárðarbunga öflugasta eldstöð Íslands, en eldstöðvakerfi hennar er um 190 km að lengd.  Er það eina kerfið á land­inu sem á upp­runa sinn í bæði Norður- og Aust­urgos­belt­inu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert